Endurheimtu sjálfsvirðinguna í eldhúsinu

Það er ein­fald­ara en þú heldur að gera mat frá grunni. Majónesið hans Óskars er ekki aðeins bragð­betra en almennt gengur og ger­ist heldur er það einnig gert á aðeins 30 sek­úndum. Hráefnin þurfa bara að vera við stofu­hita til að það tak­ist.

Fyrir ein­hverjum árum fór ég að velta því fyrir mér hvað það væri sem gerði mig ham­ingju­saman. Ég komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væru helst þrjú atriði.

Í fyrsta lagi vinir og ætt­ingjar. Gott fólk sem þekkir mig, skilur mig og lætur mér líða vel. Fólk sem ég myndi gera hvað sem er fyrir og ég veit að ég get alltaf stólað á.

Í öðru lagi er það menn­ing og listir. Gamlar blús­plötur, nýjar heim­ild­ar­myndir, vídjólist, bóka­söfn, gít­ar­glamur, karla­kórar, teikni­myndir, hús­gögn, varð­eldar, inter­netið og útvarps­þættir eru aðeins brot af vítamín­sprautu sem ég þarf til að lifa af.

Í þriðja og síð­asta lagi er það góður matur og drykkir. Matur sem nærir lík­ama og sál. Drykkir sem svala þorst­anum um leið og þeir róa mig eða gefa mér orku.

Ef ég er umvaf­inn góðu fólki, fæ að njóta menn­ingar og lista, og borða góðan mat …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár