Ellefu fylgdarlaus flóttabörn á Íslandi: „Þeim finnst að enginn vilji sjá þau“

Tals­maður hæl­is­leit­enda hjá Rauða kross­inum segir úrræði nauð­syn­lega vanta sem gagn­ist börnum og ung­mennum allt að 22 ára gömlum.

Ellefu fylgdarlaus flóttabörn á Íslandi: „Þeim finnst að enginn vilji sjá þau“
Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir Tals­maður hæl­is­leit­enda hjá Rauða krossi Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Ellefu fylgd­ar­laus börn bíða úrlausnar sinna mála hér á landi. Í hópnum eru meðal ann­ars krakkar frá Sýrlandi, Írak, Marokkó, Alsír, Túnis og Sómalíu, sem mörg hafa varið löngum tíma í að ferð­ast í gegnum Evrópu. Þau hafa verið hér frá nokkrum vikum upp undir ár og bíða þess og vona að þau geti hafið nýtt líf. Guðríður Lára Þrast­ar­dóttir, tals­maður hæl­is­leit­enda hjá Rauða kross­inum, hefur hitt þau flest og sett sig inn í mál þeirra. Hún segir þeim líða illa. „Þau tala sum um að þau vilji ekki lifa lengur. Þau vilja bara lifa eðli­legu lífi og ganga í skóla en fá ekki að gera það. Þeim finnst að eng­inn vilji sjá þau.“

Eitt barn­anna er hinn sextán ára Muhiyo Hamud frá Sómalíu. Hann var fjórtán ára þegar hann flúði Sómalíu eftir að hafa verið í haldi hryðju­verka­sam­tak­anna Alshabab og komst lífs af þegar bát hans hvolfdi á leið­inni yfir Mið­jarð­ar­hafið. Hann hefur tvisvar reynt að svipta sig lífi. Hæl­is­um­sókn hans var synjað í Svíþjóð og nú hefur hann beðið í 7 mán­uði eftir því að mál hans verði tekið upp hér á landi. Hann deilir sögu sinni í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár