„Ekki hægt að taka þessari „umræðu“ þegjandi“

Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísinda­sviðs Háskóla Íslands, segir ómaklega vegið að starfs­mönnum háskólans og gerir athugasemd við ummæli Hermanns Stef­ánssonar og frétta­flutning Stundarinnar.

Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísinda­sviðs Háskóla Íslands, telur mikilvægt að gæta þess að þeir sem tengdir eru umsækjendum um störf í háskólanum fjöl­skyldu­böndum komi hvergi nálægt meðferð starfs­umsókna og ákvörðunum um ráðningar. 

Þetta kemur fram í pistli sem Ástráður sendi Stundinni í dag. Tilefnið er nýleg frétt þar sem kemur að þeir þrír aðilar sem ráðnir voru í stöðu aðjúnkts við íslensku- og menningar­deild Háskóla Íslands í fyrra tengist ýmist þáverandi deildar­forseta, Guðna Elíssyni prófessor, eða núverandi forseta Hugvísinda­sviðs, Ástráði, fjöl­skyldu­böndum.

Í fréttinni var haft eftir Sveini Yngva Egilssyni, núverandi deildar­forseta íslensku- og menningar­deildar, að hvorki Guðni né Ástráður hefði átt aðkomu að ráðningunum. Hermann Stef­ánsson, rithöfundur sem sjálfur hefur starfað sem stunda­kennari við Háskóla Íslands undan­farin ár, lýsti nýverið íslensku- og menningar­deild háskólans sem brandara. „Háskóla­deild þar sem helmingur starfs­fólks er skyldur og venslaður. Hvar sem er í heiminum væri slík deild orðin að almennu athlægi,“ skrifaði hann í grein sem birtist á Kjarnanum. Þá vakti Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmála­fræði við háskólann, einnig máls á fjölskyldu­tengslunum.

Ástráður Eysteinsson gagnrýnir bæði skrif Hermanns Stef­ánssonar og frétta­flutning Stundarinnar. 

„Ég hef heyrt vel meinandi fólk segja að það sé óheppilegt að á sama tíma hafi annars vegar verið ráðin til starfa við deildina hjón tengd sviðs­forseta, og hins vegar eiginkona fyrr­verandi deildar­forseta,“ skrifar hann og bætir við: „Svo kann að vera, en það er ekki hlutverk háskóla­stjórn­sýslunnar að koma í veg fyrir að ákveðnir einstaklingar sæki um störf sem auglýst eru, né heldur að láta það bitna á þeim að þeir séu venslaðir starfs­mönnum sem fyrir eru, hvort sem skyldmennin eru akademískir starfs­menn eða fólk í stjórnunar­störfum. Háskóli Íslands er mjög fjölmennur vinnu­staður á íslenskan mæli­kvarða og hefði farið á mis við marga góða starfs­menn ef hjón mættu ekki vinna við stofnunina eða ekki mætti ráða til hennar fólk sem er venslað öðrum starfs­mönnum.“

Ástráður tekur fram að Hermann Stef­ánsson er með BA-gráðu og meistara­próf í bókmennta­fræði við Háskóla Íslands og hefur sinnt stunda­kennslu í háskólanum. Þá gagnrýnir hann Stundina fyrir að vitna „án nokkurrar gagn­rýninnar skoðunar, til stór­karlalega ávirðinga Hermanns Stef­ánssonar, eins og þær væru vitnis­burður sem skipti máli“.

Loks bætir hann því við að ávirðingarnar hitti ekki aðeins sig og Guðna Elísson fyrir heldur einnig það fólk sem ráðið var til umræddra starfa og fagfólkið sem bar ábyrgð á stjórn­sýslunni í ráðninga­málunum. „Þess vegna er ekki hægt að taka þessari „umræðu“ þegjandi,“ skrifar Ástráður að lokum. 

Hér að neðan má lesa pistil Ástráðs í heild: 

Stund Hermanns

Athugasemdir við grein og frétt


Þann 17. ágúst sl. birti Hjálmar Friðriksson blaða­maður frétt í Stundinni undir titlinum „Deildar­forseti segir fagmennsku hafa ráðið ráðningu fjölskyldu­meðlima“. Tilefnið er ráðningar kennara við Íslensku- og menningar­deild Háskóla Íslands. Þessi frétt virðist hafa verið lesin af mörgum, vonandi af almennum áhuga á starfsemi Háskóla Íslands, en kannski hafa einhverjir talið sig finna lykt af spillingu – enn eina stað­festingu þess að margt sé rotið í samfélagi okkar, jafnvel í þeirri ríkis­stofnun sem lengi hefur notið hvað mests trausts meðal almennings á Íslandi. 

Það verður seint sagt að málið hafi verið rækilega kannað af blaða­manninum. Hann ræðir að vísu við Svein Yngva Egilsson deildar­forseta, sem greinir frá því að ráðning þriggja einstaklinga sem tengjast annars vegar undir­rituðum, forseta Hugvísinda­sviðs, og hins vegar Guðna Elíssyni prófessor, fyrr­verandi deildar­forseta, hafi átt sér stað án minnstu aðkomu okkar tveggja að ráðningunum; við hefðum alfarið sagt okkur frá ferlinu. Blaða­maðurinn bætir við: „Athygli vekur að báðir gerðu það strax við gerð auglýsingar á stöðunum.“ Á móti orðum Sveins Yngva teflir blaða­maður tilvitnunum úr grein sem Hermann Stef­ánsson, rithöfundur og bókmennta­fræðingur, birti í vefblaðinu Kjarnanum þann 13. maí sl. Sú grein er í reynd önnur helsta „heimild“ blaða­mannsins og órökstuddar full­yrðingar Hermanns, sem ekki eru meðhöndlaðar af minnstu gagnrýni í fréttinni, ganga þvert á ummæli Sveins Yngva. Svo eiga lesendur líklega að ímynda sér hvað þarna hafi raun­verulega gerst – hlýtur ekki að vera einhver maðkur í mysu Háskólans?

Fagmennska og fjóshaugur

Ég hef heyrt vel meinandi fólk segja að það sé óheppilegt að á sama tíma hafi annars vegar verið ráðin til starfa við deildina hjón tengd sviðs­forseta, og hins vegar eiginkona fyrr­verandi deildar­forseta. Svo kann að vera, en það er ekki hlutverk háskóla­stjórn­sýslunnar að koma í veg fyrir að ákveðnir einstaklingar sæki um störf sem auglýst eru, né heldur að láta það bitna á þeim að þeir séu venslaðir starfs­mönnum sem fyrir eru, hvort sem skyldmennin eru akademískir starfs­menn eða fólk í stjórnunar­störfum. Háskóli Íslands er mjög fjölmennur vinnu­staður á íslenskan mæli­kvarða og hefði farið á mis við marga góða starfs­menn ef hjón mættu ekki vinna við stofnunina eða ekki mætti ráða til hennar fólk sem er venslað öðrum starfs­mönnum. Hins vegar þarf vitaskuld að gæta þess vel að þeir sem tengdir eru umsækjendum fjöl­skyldu­böndum komi hvergi nálægt meðferð starfs­umsókna og ákvörðun um ráðningu.   

Grein Hermanns Stef­ánssonar hefst sem brúna­þungt svar við grein sem Hjalti Snær Ægisson, doktorsnemi og stunda­kennari við Íslensku- og menningar­deild á Hugvísinda­sviði HÍ, birti í Kjarnanum, þar sem hann deilir á Braga Ólafsson rithöfund fyrir að selja fyrirtæki bókarverk sem fór ekki á almennan markað. En reiði Hermanns beinist síðan að háskóla­deild Hjalta, deild sem Hermann kallar „forað“, og blaða­maður Stundarinnar vitnar til þessa ummæla Hermanns: „Háskóla­deildin sem Hjalti Snær starfar við er til dæmis ekki beinlínis neitt kirkju­skrúðhús og nær að ætla að hún sé slétt sagt spillt því hún er rekin eins og fjölskyldu­fyrirtæki. Ástráður Eysteinsson prófessor hefur ráðið þar mágkonu sína til starfa, Heiðu Jóhanns­dóttur, sem og svila, Björn Þór Vilhjálmsson. Við deildina starfar Guðni Elísson og einnig kona hans, Alda Björk Valdimars­dóttir. Nýverið voru tvær stöður auglýstar, mér er ókunnugt um hvort ættartré þurfi að fylgja umsóknum en löngu ljóst að deildin getur ráðið hvern sem henni sýnist og skutlað allri fagmennsku á fjós­hauginn ef henni býður svo við að horfa“.

Eymdarstuna og kindabyssa

Ég gæti litið á ummæli Hermanns sem ærumeiðingar og atvinnuróg, því að vitaskuld kom ég hvergi að þessum ráðningum, ekki frekar en Guðni; það gerði annað fólk sem er ótengt umsækjendum um störfin. En hvernig á að bregðast við svona gusugangi? Í grein sinni bætir Hermann við: „Talaði einhver um meðvirkni kunningja­samfélagsins? Þetta er hreinn brandari. Háskóla­deild þar sem helmingur starfs­fólks er skyldur og venslaður. Hvar sem er í heiminum væri slík deild orðin að almennu athlægi.“ Nú er þess að geta að við Íslensku- og menningar­deild starfa á fimmta tug fastra kennara í mörgum greinum, auk nokkurs fjölda stunda­kennara, og einn þeirra síðarnefndu hefur á liðnum árum einmitt verið Hermann Stef­ánsson. Ég veit ekki til að honum hafi verið tekið illa er hann sneri aftur á fornar slóðir, þar sem hann lauk áður BA-prófi og síðar meistara­prófi í bókmennta­fræði. En nú sér hann svart þegar talið berst að þessari deild og sérstak­lega bókmennta­fræðinni: „Ekki hef ég ýkja margt heyrt úr ranni bókmennta­fræðinnar undan­farin tíu ár nema ámóta dapurlega beyglaða sýn og birtist í grein Hjalta Snæs, þessa eymdar­stunu úr ættarmóti, þetta niðurkoðnaða vandlætingar­taut sem markast af átakanlegum skorti á reynslu af öllu lífi og öllum veruleika og áhuga­leysi á bókmenntum, metnaðar­leysi, hugleysi, aumingja­skap.“

Ansi hefur farið illa fyrir okkur, ég verð að segja það. „Bókmennta­fræði er dauð“, segir Hermann. „Bókmennta­fræði er blaður“. Og lokaorð hans eru: „Þetta er búið. Ekkert eftir nema að grípa kinda­byssu og skjóta þetta“ (þessara ummæla er ekki getið í Stundinni). Ef Hermann á við kinda­byssu eins og þá sem notuð var í kaup­félaginu í heima­þorpi mínu hér áður fyrr, þegar ég vann þar á sláturtíð og heyrði lömbin þagna álengdar, þá vill hann að minnsta kosti ekki vera sá heigull að skjóta úr launsátri, heldur í miklu návígi og jafnvel horfast í augu við skot­mörkin um leið og hann tekur í gikkinn. Það er þakkar­vert.

Ávirðingar

Ég sá enga ástæðu til að taka offors og stórmæli Hermanns alvarlega. Þau geta ekki talist til málefnalegrar gagnrýni sem háskóla­fólk á í senn að ástunda og bregðast við. Nú er þessi pistill hans hinsvegar orðin heimild hjá blaða­manni, að ætla mætti marktæk heimild í frétt hjá miðli sem vill stunda samfélags­gagnrýni. Því skal ítrekað að hvorki ég né Guðni Elísson tókum nokkurn þátt í umræddum ráðningum í Háskóla Íslands. Þetta væri hægt að fá staðfest með ýmsum vitnis­burði í skólanum og er hægt að kalla eftir honum sé áhugi fyrir slíku. Þegar fyrir lá, eftir að tveir fasta­kennarar deildarinnar höfðu látið af störfum, að auglýst yrðu fjögur 50% aðjunkts­störf, þ.e. í bókmennta­fræði, kvikmynda­fræði og menningar­fræði – og svo rúmu ári síðar tvö lektors­störf í bókmennta­fræði og kvikmynda­fræði – vissum við Guðni í bæði skiptin að einstaklingar tengdir okkur hefðu hug á að sækja um þessi störf. Þess vegna  komum við ekki nálægt gerð auglýsinganna, hvað þá mati á umsóknum, viðtölum við umsækjendur, eða ákvörðun um hverjir væru hæfastir til þessara starfa. Ráðningar við skólann eru ekki mótaðar af geðþótta. Dómnefndir og valnefndir starfa eftir skýrt mörkuðum hæfni­viðmiðum. Sviðs­forseti hefur svo það hlutverk að fara yfir niður­stöður, kanna hvort eðlilega hafi verið staðið að málum og staðfesta niður­stöðuna ef allt reynist með felldu. Þessu verki sinntu stað­genglar í umræddum tilvikum, fólk í ábyrgðar­stöðum utan deildarinnar.

Allt var því gert til að tryggja vönduð og óhlutdræg vinnu­brögð. Ef blaða­maður treysti ekki orðum Sveins Yngva Egils­sonar um það, hefði kannski átt að kanna málið betur í skólanum, í stað þess að leita, án nokkurrar gagn­rýninnar skoðunar, til stór­karlalega ávirðinga Hermanns Stef­ánssonar, eins og þær væru vitnis­burður sem skipti máli. Og þær ávirðingar hitta ekki eingöngu okkur Guðna Elísson fyrir, heldur líka það fólk sem ráðið var til umræddra starfa, og síðast en ekki síst þá hópa fagfólks sem bar ábyrgð á allri stjórn­sýslunni í þessum ráðninga­málum. Þess vegna er ekki hægt að taka þessari „umræðu“ þegjandi.

Höfundur er forseti Hugvísinda­sviðs Háskóla Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár