„Eins og fimm ára nammisjúkt barn með lágan blóðsykur“

Sölvi Tryggva­son fékk mat­ar­eitrun um helg­ina. Skemmti­leg frá­sögn fjöl­miðla­manns af sjálfs­vor­kunn og veik­indum.

„Eins og fimm ára nammisjúkt barn með lágan blóðsykur“
Fékk mat­ar­eitrun Sölvi Tryggva­son, fjöl­miðla­maður, lýsir með ljóð­rænum hætti líðan sinni í kjöl­far mat­ar­eitr­unar sem hann fékk um helg­ina.

„Ég fékk mat­ar­eitrun fyrir helgi. Hund­leið­in­legt dæmi eins og þeir sem hafa prófað þekkja,“ segir fjöl­miðla­mað­ur­inn Sölvi Tryggva­son í nýrri kveðju með frétta­yf­ir­liti á Spyr.is. Sölvi tók við rit­stjórn á nýjum dálki á upp­lýs­inga- og afþrey­ing­ar­síð­unni fyrir skemmstu. Þar rennir hann yfir helstu fréttir fjöl­miðla ásamt því að skrifa kveðju til les­enda.

„Eitt er að geta ekki haldið neinu niðri og missa lík­am­lega orku. En það sem er öllu verra er sjálfs­vor­kunnin sem fylgir yfir­leitt með í kaup­bæti. Ég hef alltaf öfundað fólk sem heldur rök­hugsun þegar það veik­ist. Hjá mér er það ein­fald­lega ekki þannig. Ef veik­indi mín fara yfir ákveðið stig verður ekki aftur snúið. Mér líður þá gjarnan eins og eng­inn í heim­inum eigi meira bágt og ég verði aldrei heil­brigður aftur. Helgin var þannig. Mat­ar­eitr­unin varð á auga­bragði að ein­hverju allt öðru og miklu verra. Þar sem ég lá í rúm­inu stjarn­fræði­lega lít­ill í mér …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár