DV sýknað: „Ólga vegna ástkonu“ fær að standa

Útgáfu­félagið DV og Reynir Traustason sýknuð af stefnu Söru Lindar Guðbergs­dóttur. Var sögð ástkona Stefáns Einars Stef­ánssonar fyrr­verandi formanns VR.

Útgáfu­félag DV og Reynir Traustason, fyrr­verandi ritstjóri blaðsins, voru í dag sýknuð í Hæstarétti af stefnu Söru Lindar Guðbergs­dóttur vegna umfjöllunar um hana í desember 2012. Hæstiréttur snéri þannig við ákvörðun Héraðs­dóms Reykja­víkur en á síðasta ári var félagið og ritstjórinn dæmd til að greiða Söru Lind 300 þúsund krónur í miska­bætur og 621 þúsund króna máls­kostnað. 

Ekki opinber persóna

Stefán Einar Stef­ánsson, fyrr­verandi formaður VR, og unnusta hans, Sara Lind Guðbergs­dóttir, höfðuðu meiðyrðamál gegn blaðinu vegna umfjöllunar um ráðningu Söru Lindar til VR á þeim tíma sem Stefán Einar gegndi formennsku hjá VR. Sara Lind hafði verið ráðin í yfirmanns­stöðu hjá VR þótt hún hafi ekki verið metin hæfust. Í umfjölluninni segir meðal annars að innan VR hafi sú saga gengið að áður en ráðningar­ferlið fór af stað væri búið að ákveða að Sara Lind fengi starfið. Stefán Einar skrifaði langa grein í Morgun­blaðið á sínum tíma þar sem hann krafðist þess að blaðið biðjist afsökunar á umfjölluninni. Stefán Einar starfar nú sem blaða­maður hjá Morgun­blaðinu. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár