David Bowie sendi skilaboð um dauðann í síðasta myndbandi sínu

Fjórum dögum fyrir and­lát sitt sendi David Bowie frá sér mynd­band við lagið Lazarus, sem sýnir hann veiklu­legan í sjúkra­rúmi. Bæði mynd­bandið og text­inn virð­ast vera síð­ustu skila­boð manns við dauða­dyrnar.

David Bowie sendi skilaboð um dauðann í síðasta myndbandi sínu
David Bowie Í mynd­band­inu liggur Bowie í sjúkra­rúmi og seg­ist vera á himnum.

Lista­mað­ur­inn David Bowie er lát­inn eftir bar­áttu við krabba­mein, 69 ára gam­all.

Bowie var fjöl­hæfur, og starf­aði sem söngv­ari og laga­höf­undur, en einnig sem fram­leið­andi og leik­ari, á ferli sem spann­aði rúm­lega fjóra ára­tugi. Hann gaf út sína 25. og jafn­ramt síð­ustu plötu á afmæl­is­dag­inn sinn, 8. jan­úar, síð­asta föstu­dag, sem einnig var afmæl­is­dag­ur­inn hans.

Daginn fyrir afmælið, síð­asta fimmtu­dag, sendi Bowie frá sér sitt síð­asta mynd­band. Það ber heitið Lazarus, og sýnir Bowie liggj­andi í eins­konar sjúkra­rúmi með bundið fyrir augun.

 

Í text­anum við lagið syngur Bowie um að hann sé á himnum, að hann sé í svo mik­illi vímu að hann heil­inn í honum hringsnú­ist, en minn­ist einnig á að brátt verði hann frjáls:

Lazarus

Look up here, I’m in hea­ven

I’ve got scars that can’t be seen

I’ve got drama, can’t be sto­len

Everybody knows me now

 

Look up here, man, I’m in dan­ger

I’ve got not­hing left to lose

I’m so high it makes my brain whirl

Dropped my cell phone down below

 

Ain’t that just like me

 

By the time I got to New York

I was liv­ing like a king

Then I used up all my money

I was looking for your ass

 

This way or no way

You know, I’ll be free

Just like that bluebird

Now ain’t that just like me

 

Oh I’ll be free

Just like that bluebird

Oh I’ll be free

Ain’t that just like me

Lazarus rís upp frá dauðum

Söguna um Lazarus er að finna í Jóhann­es­ar­guð­spjalli. Lazarus, var sagður einn af fylgj­endum Jesúsar. Systur hans sendu skila­boð til Jesúsar umað Lazarus væri veikur, en í stað­inn fyrir að ferð­ast strax til hans beið Jesús vís­vit­andi í tvo daga áður en hann lagði af stað.

Þegar Jesús kemur á stað­inn er Lazarus lát­inn, og hefur verið í graf­hvelf­ingu sinni í fjóra daga. Jesús ræðir við systur Lazarusar, og ávíta þær hann fyrir að hafa ekki komið fyrr. Svarar Jesús þá með sinni frægu yfir­lýs­ingu: „Ég er upp­risan og lífið; sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi og hver sá, sem lifir og trúir á mig, hann skal aldrei að eilífu deyja.“ Síðar segir sögu­maður frá því með ein­faldri lýs­ingu að „Jesús grét“​.

Ásamt hópi af syrgj­andi gyð­ingum fer Jesús að graf­hvelf­ing­unni. Þrátt fyrir mót­mæli Mörtu, systur Lazarusar, lætur Jesús velta stein­inum frá inn­gangi hvelf­ing­ar­innar, og fer með bæn. Hann kallar svo á Lazarus og koma út, og Lazarus hlýðir, enn vaf­inn í lík­klæði. Jesús biður um að hann sé færður úr þeim, og honum svo sleppt.

Vert er að minn­ast þess að Lazarus er, fyrir utan Jesús, eina per­sóna Bibl­í­unnar sem rís upp frá dauðum.

Hér má lesa stutta yfir­ferð Stund­ar­innar um feril Bowie. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár