Fólki gert kleift að nýta sér skattfrjálsan séreignarsparnað í áratug við öflun fyrstu fasteignar

Úrræði fyrir ungt fólk á fast­eigna­mark­aði kynnt í Hörpu: „Almenna reglan verður að ekki sé heim­ilt að taka verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til lengri tíma en 25 ára“

Fólki gert kleift að nýta sér skattfrjálsan séreignarsparnað í áratug við öflun fyrstu fasteignar

Rík­is­stjórnin ætlar að beita sér fyrir laga­setn­ingu sem skapar sér­staka hvata hjá ungu fólki til að taka óverð­tryggð lán og draga þannig úr vægi verð­trygg­ing­ar­innar. Þá verður fólki gert kleift að nýta sér skatt­frjálsan sér­eign­ar­sparnað í ára­tug við öflun fyrstu fast­eignar. 

Þetta er á meðal þess sem fram kom á frétta­manna­fundi í Hörpu um úrræði fyrir nýja kaup­endur á hús­næð­is­mark­aði. Verður almenna reglan sú að hámarks­lengd nýrra verð­tryggðra lána sé 25 ár en þetta er í sam­ræmi við til­lögur sér­fræð­inga­hóps­ins um afnám verð­trygg­ingar af nýjum neyt­enda­lánum.

Skemmst er að minn­ast þess að „afnám verð­trygg­ingar“ var eitt helsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar 2013. Af því sem fram kom á frétta­manna­fund­inum er ljóst að ekki stendur til að afnema eða banna verð­trygg­ing­una, heldur snúa til­lög­urnar að því að „draga úr vægi“ hennar. Frum­vörpin verða lögð fyrir þingið í vik­unni og er gert ráð fyrir að úrræðið geti tekið gildi á næsta ári.

Þing kemur síðan saman í dag kl. 15 eftir sum­ar­leyfi og mun Sigurður Ingi meðal ann­ars flytja munn­lega skýrslu um stöðu þjóð­mál­anna. Áætlað er að þing standi til föstu­dags­ins 2. sept­em­ber en eins og kunn­ugt er munu kosn­ingar að öllum lík­indum fara fram þann 29. októ­ber næst­kom­andi. 

Eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar um úrræðin hafa verið birtar á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins:

Fast­eigna­kaup verða auð­veld­ari og afborg­anir létt­ari fyrir nýja kaup­endur á fast­eigna­mark­aði verði til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar í frum­varpi til laga um stuðn­ing við kaup á fyrstu íbúð sam­þykktar.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynntu aðgerð­irnar í Hörpu í dag. Til­gang­ur­inn er að auka og hvetja til hús­næð­is­sparn­aðar og auð­velda fyrstu kaup. Jafn­framt fela þær í sér stuðn­ing við þá sem vilja taka óverð­tryggð lán þar sem sam­spil greiðslna inn á höf­uð­stól og afborg­anir gera greiðslu­byrði þeirra á fyrstu árum sam­bæri­lega við löng verð­tryggð lán hjá þorra ein­stak­linga.

Í frum­varp­inu er kveðið á um þrjár leiðir sem rétt­hafi getur valið á milli við ráð­stöfun á við­bót­ar­ið­gjaldi. Þær eru heim­ild til úttektar á upp­söfn­uðu við­bót­ar­ið­gjaldi til kaupa á fyrstu íbúð, heim­ild til að ráð­stafa við­bót­ar­ið­gjaldi inn á höf­uð­stól láns, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, yfir tíu ára sam­fellt tíma­bil og að lokum heim­ild til að ráð­stafa við­bót­ar­ið­gjaldi sem afborgun inn á óverð­tryggt lán, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, og sem greiðslu inn á höf­uð­stól þess.

Úrræðið er var­an­legt en hámarks­tími er sam­fellt tíu ára tíma­bil fyrir hvern ein­stak­ling.  Greiðslur hvers ein­stak­lings inn á sér­eign­ar­sparnað geta numið allt að fimm millj­ónum króna á tíu ára tíma­bili, sam­tals 10 millj­ónir fyrir par. Fyrir þá sem ekki eru þegar með sér­eign­ar­sparnað getur sú ákvörðun að leggja fyrir og nýta sparnað til hús­næð­is­kaupa sam­svarað um 3% launa­hækkun í 10 ár vegna skatta­legs hag­ræðis og mót­fram­lags launa­greið­anda.

Fleiri ungir í for­eldra­húsum

Á árunum 2005 til 2014 jókst hlut­fall ungs fólks á leigu­mark­aði veru­lega, úr 12% í 31%. Jafn­framt er fólk á aldr­inum 25-29 ára mun lík­legra til að búa í for­eldra­húsum nú en fyrir ára­tug. Eft­ir­spurn eftir minni íbúðum hefur einnig auk­ist mikið á und­an­förnum  árum með til­heyr­andi verð­hækkun hús­næðis, en minnstu eign­irnar hafa hækkað hlut­falls­lega mest og rúm­lega tvö­falt meira en sér­býli frá árinu 2009.

Fyr­ir­huguð hækkun líf­eyr­is­sjóðsið­gjalda í 15,5% leiðir til þess að hjá ein­stak­lingi sem byrjar snemma að leggja fyrir sér­eign­ar­sparnað geta eft­ir­laun orðið hærri en laun við starfs­lok og því getur verið hag­kvæmt að nýta hluta sér­eign­ar­sparn­aðar fyrr á ævi­skeið­inu.

Aðgerð­irnar stuðla að heil­brigð­ari skulda­hlut­föllum heim­ila og auka getu til fjár­fest­ingar í fyrstu fast­eign, sam­hliða því að styðja við pen­inga­stefn­una með því að draga úr vægi verð­tryggðra lána. Val­frelsi er þó lyk­il­at­riði og heim­ild til nýt­ingar skatt­frjáls sér­eign­ar­sparn­aðar vegna kostn­aðar af fyrstu fast­eign er óháð láns­formi.

Úrræðin standa öllum til boða sem greiða eða munu greiða í sér­eign­ar­sparnað og hafa ekki átt íbúð áður.

Núgild­andi sér­eignar­úr­ræði fram­lengt og tak­mörkun á hámarks­lengd Íslands­lána

Í frum­varpi til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð verður jafn­framt lagt til að gild­andi úrræði um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til lækk­unar á höf­uð­stól fast­eigna­lána verði fram­lengt um tvö ár. Um 37 þús­und manns nýta þetta úrræði í dag. Lagt er til að ein­stak­lingar sem þegar hafi hafið upp­söfnun á iðgjöldum, til öfl­unar á íbúð­ar­hús­næði til eigin nota á grund­velli núgild­andi ákvæðis til bráða­birgða í lögum um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða, en ekki nýtt sér þá heim­ild fyrir 1. júlí 2017, verði heim­ilað að flytja áunnin rétt­indi sín og nýta þau á grund­velli frum­varps­ins ef um kaup á fyrstu íbúð er að ræða. Jafn­framt er lagt til að rétt­hafar sem þegar hafa nýtt rétt á grund­velli umrædds ákvæðis til bráða­birgða og eftir atvikum ráð­stafað iðgjöldum inn á höf­uð­stól fast­eign­ar­veð­láns, sem tekið var í tengslum við öflun á íbúð­ar­hús­næð­inu, verði heim­iluð áfram­hald­andi nýt­ing á við­bót­ar­ið­gjaldi sínu til greiðslu inn á lánið uns tíu ára sam­fellda tíma­bili frum­varps­ins er náð. Heim­ildin tekur til þeirra sem voru að kaupa sitt fyrsta hús­næði.

Þá verður lagt fram annað frum­varp um tak­mörkun 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána. Almenna reglan verður að ekki sé heim­ilt að taka verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til lengri tíma en 25 ára. Und­an­þágur frá því verði veittar ungu fólki,tekju­lágum ein­stak­lingum og ein­stak­lingum sem taka lán með lágu veð­setn­ing­ar­hlut­falli.

Helstu efn­is­þættir frum­varps um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð eru eft­ir­far­andi:

Stuðn­ingur fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð.

Úrræðið gildir í tíu ár sam­fellt.

Heimilar ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar sem safn­ast hefur upp á til­teknu tíma­bili til kaupa á fyrstu íbúð.

Heimilar ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð og sem tekið var vegna kaupanna.

Heimilar ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar til afborg­unar á óverð­tryggðu láni og inn á höf­uð­stól láns, sem tryggt er með veði í hús­næð­inu.

Sér­eign­ar­sparn­aður sem nýttur er til greiðslu inn á höf­uð­stól lána og eftir atvikum sem afborgun vegna kaupa á fyrstu íbúð er skatt­frjáls.

Hámarks­fjár­hæðir og önnur við­mið:

Hámarks­fjár­hæð á ári (12 mán­uðir), sam­tals 500 þús. kr. á ein­stak­ling.

Hámarks­ið­gjald, 4% frá laun­þega og 2% frá launa­greið­anda.

Ein­stak­lingur spari a.m.k. til jafns við fram­lag launa­greið­anda.

Áskilið er að rétt­hafi eigi að minnsta kosti 50% hlut í íbúð­ar­hús­næð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár