Boða róttækar breytingar á barnalögum

Lögmaður sem sérhæfir sig í fjölskyldu­rétti segir breytingar sem ný ríkis­stjórn boðar á barna­lögum bæði róttækar og afdráttar­lausar. Boðaðar séu miklar breytingar á fjölskyldu­rétti sem séu til bóta, ekki síst fyrir þá foreldra sem skilja að skiptum en vilja og geta haldið áfram að ala upp börn sín saman og í sátt.

Börn í leikskóla
Börn í leik­skóla Í dag geta börn aðeins verið skráð með lög­heim­ili hjá öðru for­eldra sinna. Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar segir að tryggja eigi rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lög­heim­ilum. Mynd: Kristinn Magnússon

Í stjórnar­sáttmála Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar segir að samfélagið eigi að styðja ólíkar fjölskyldu­gerðir og hvetja til þess að foreldrar sem ekki búi saman ali upp börn sín í sátt. Þar segir að tryggja eigi rétt barna til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lögheimilum og aðstaða umgengnis­foreldra og lögheimilis­foreldra verði jöfnuð. Þetta vakti athygli Oddgeirs Einars­sonar lögmanns en hann hefur sérhæft sig í fjölskyldu­rétti. „Þetta er mjög afdráttar­laust orðalag, með því afdráttar­lausara í stjórnar­sáttmálanum. Þetta hefur verið baráttumál margra í mörg ár og ég held að þetta verði mjög jákvæðar breytingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár