Björt framtíð útilokar ekki hægri stjórn

Viðreisn lýsir and­stöðu við stjórn með Pírötum. Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist ekki vilja úti­loka neitt.

Björt framtíð útilokar ekki hægri stjórn
Við­reisn­ar­stjórn með Bjartri fram­tíð? Óttar Proppé og Benedikt Jóhann­es­son fylgj­ast með úrslitum kosn­ing­anna í nótt. Mynd: Pressphotos

Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, úti­lokar ekki hægri stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn. Flest önnur rík­is­stjórn­ar­mynstur hafa verið úti­lokuð í umræðum fyrir og eftir kosn­ingar.

Benedikt Jóhann­es­son hefur í raun úti­lokað mögu­leik­ann á fimm flokka stjórn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. „Þá værum við að ganga inn í Pírata­banda­lagið. Ég held að það væri á skjön við úrslit kosn­ing­anna,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son á Stöð 2 í hádeg­inu.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefur þá bæði lýst and­stöðu sinni við að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki og Pírötum, og því stendur eftir að mynda stjórn með VG eða Bjartri fram­tíð, ásamt Sjálf­stæð­is­flokki. Þar sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, seg­ist ekki vilja rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hafa mögu­leik­arnir þrengst. Björt fram­tíð er hins vegar opin fyrir öllu.

Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, hélt öllu opnu í umræðum for­manna á Stöð 2 í hádeg­inu. „Mál­efna­lega hafa þessir flokkar verið ansi langt í sundur. En það er ekki ástæða til að úti­loka neitt fyr­ir­fram.“

VG vill ekki Sjálfstæðisflokkinn

Katrín Jak­obs­dóttir sagð­ist ekki vilja sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir kosn­ingar og end­ur­tók það eftir kosn­ingar. Hún sagð­ist helst vilja stjórn minni­hlut­ans á Alþingi: „En það virð­ist ekki í spil­un­um. Við höf­um líka sagt að við telj­um nán­ast enga mál­efna­lega sam­leið með okk­ur og Sjálf­stæð­is­mönn­um og það hef­ur ekk­ert breyst í því. Eins og ég er búin að segja, þetta eru þeir flokk­ar sem standa lengst frá hvor öðrum í ís­lensk­um stjórn­mál­um. Við sjá­um ekki fyr­ir okk­ur slíkt sam­starf.“

Tæp Viðreisnarstjórn með Bjartri framtíð

Hins vegar hægt að mynda tæpa rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Slík rík­is­stjórn væri tæp, með aðeins 32 þing­menn gegn 31 þing­manni stjórn­ar­and­stöðu, með sama meiri­hluta og Nýsköp­un­ar­stjórnin 1944 til 1947 og Við­reisn­ar­stjórnin 1963 til 1971, sem sam­sett var af hægri og vinstri flokki, Sjálf­stæðis- og Aþýðu­flokki. Allir flokk­arnir þrír eru í kringum miðju eða hægra megin við hana í efna­hags­legu til­liti. Helsti ágrein­ing­ur­inn gæti legið í sjáv­ar­út­vegs­málum, þar sem Viðreisn hafði talað fyrir upp­boði á afla­heim­ildum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn staðið harður gegn því. Þá falla stefnur Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ágæt­lega saman. Í þeirri rík­is­stjórn hefur eng­inn úti­lokað sam­starf við annan, ólíkt flestum öðrum mögu­legum rík­is­stjórn­ar­sam­störfum. 

Hér er fjallað nánar um mögu­leg rík­is­stjórn­ar­mynstur.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár