Björn Ingi fékk kúlulán meðfram lundafléttu

Björn Ingi Hrafns­son var umsvifa­mik­ill í íslensku við­skipta­lífi á meðan hann starf­aði sem náinn sam­starfs­maður Halldórs Ásgríms­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem stjórn­mála­maður í borg­inni og síðar blaða­maður hjá 365 miðlum. Það sem ein­kennir fjár­hags­legar fyr­ir­greiðslur til Björns Inga á þessu tíma­bili er að alltaf eru aðilar tengdir Kaup­þingi handan við hornið.

Björn Ingi fékk kúlulán meðfram lundafléttu

Björn Ingi Hrafns­son fékk rúm­lega 60 millj­óna króna kúlu­lán frá Kaup­þings­mönnum árið 2005 þegar hann starf­aði sem aðstoð­ar­maður Halldórs Ásgríms­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, skömmu eftir einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Núvirði láns­ins er milli 100 til 110 millj­ónir. Nýút­komin skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í einka­væð­ing­unni varpar ljósi á þátt Kaup­þings í blekk­inga­fléttu vegna kaupanna, en Björn Ingi hefur ítrekað getað treyst á fjár­hags­lega vel­vild Kaup­þings, og stærstu eig­enda bank­ans vegna starfa sinna í stjórn­málum og fjöl­miðlum. Rann­sókn­ar­nefndin sýnir svo ekki er vafi á að Ólafur Ólafsson og Kaupþing stóðu að blekk­inga­fléttu þar sem þáttur þýska bank­ans í kaupum á Bún­að­ar­bank­anum var ekki annar en að fela aðild þeirra að kaup­unum. Björn Ingi naut mik­illar fjár­hags­legrar vel­vildar af hálfu Kaupings og eig­enda sam­hliða fléttu sem fela átti slóð Ólafs og „lund­ans“, það er Kaup­þings.

Fjölmiðlaveldi eftir gjaldþrotaskipti 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár