Björk Eiðsdóttir fékk heilablæðingu

Margir töldu að hún hefði unnið yfir sig. Segir að karl í sinni stöðu hefði ekki fengið sömu við­brögð.

Björk Eiðsdóttir fékk heilablæðingu

Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri MAN-Magasín og þátta­stjórn­andi á Hring­braut, fékk heila­blæð­ingu við mænu­kylf­una fyrir rúmum tveimur vikum og hefur verið frá vinnu vegna veik­inda síðan. Frá þessu segir hún í pistli á hring­braut.is. „Fyrir rúmum tveimur vikum var ég keyrð með sjúkra­bíl á spít­ala. Ég ætl­aði nú bara að leggja mig og athuga hvort sviminn, höf­uð­verk­ur­inn og skekkjan á vinstri hluta and­lits­ins myndi ekki bara jafna sig,“ skrifar hún meðal ann­ars. Hún seg­ist fyrst hafa haldið að eitt­hvað slen væri komið yfir hana en eftir að hafa verið sann­færð af einkar ákveðnum vin­konum sínum og dóttur um að kíkja á lækna­vakt­ina hafi hún endað á sjúkra­börum og beint á sjúkra­hús.

Ekki streita sem varð til þess að æðin rofnaði

„Til að gera langa sögu stutta kom í ljós að ég hafði orðið fyrir heila­blæð­ingu við mænu­kylf­una (svo­kallað Wallenberg heil­kenni). Hún er óút­skýrð og ekk­ert sem ég gerði eða ekki gerði olli henni eða hefði komið í veg fyrir hana. Það var ekki streita, háþrýst­ingur eða neitt slíkt sem varð til þess að æðin rofn­aði og hefði hún gert það þó ég væri barn­laus jóga­kenn­ari í ham­ingju­sömu hjóna­bandi sem drekkur grænt te og borðar hrá­fæði í hörfötum við lág­stemmda slök­un­ar­tón­list alla daga,“ skrifar Björk.

„Karl í minni stöðu hefði ekki upp­lifað sömu við­brögð“

„Verandi aftur á móti þriggja barna ein­stæð móðir sem rekur fyr­ir­tæki, rit­stýrir tíma­riti, stjórnar viku­legum sjón­varps­þætti og tekur virkan þátt í líf­inu, virt­ist eng­inn (nema heil­brigð­is­starfs­fólk) efast um að ég hefði hrein­lega keyrt mig út, unnið yfir mig... loks bug­ast af álag­inu. Með fullri virð­ingu fyrir því að keyra þannig á vegg þá fór þessi „grein­ing“ ekki vel í mig. Ekki síst vegna þess að sá grunur læð­ist sterk­lega að mér að karl í minni stöðu hefði ekki upp­lifað sömu við­brögð . Hefði það verið það fyrsta sem fólki dytti í hug ef karl­kyns yfir­maður á besta aldri og í fínu formi hefði lagst inn á spít­ala? Ég leyfi mér að segja nei. Sjálfri leið mér svo­lítið eins og fólk vildi bara að ég legði mig, slak­aði aðeins á og breytti for­gangs­röð­un­inni,“ skrifar Björk en hún kemur til starfa í næstu viku.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár