Skora á forseta að leysa ráðherra frá störfum

Hátt í fimm hund­ruð manns hafa skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, að veita ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar lausn. Pró­fessor í stjórn­mála­fræði segir for­sæt­is­ráð­herra sitja svo lengi sem for­set­anum þókn­ast. Útlit er fyrir fjöl­menn mót­mæli á mánu­dag.

Skora á forseta að leysa ráðherra frá störfum

Björgvin Þór Hólm, fram­kvæmda­stjóri í Kópavogi, sendi Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, áskorun í gær um að leysa ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar frá störfum. Tæplega fimm hund­ruð manns hafa nú skrifað nafn sitt á und­ir­skrifta­lista Björg­vins á vef­síð­unni change.org þar sem biðlað er til for­seta Íslands að grípa í taumana. Ástæðan eru fréttir af aflands­fé­lagi eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Eins og kunn­ugt er átti félagið um 500 millj­óna króna kröfu í slitabú bank­anna á sama tíma og for­sæt­is­ráð­herra var sjálfur að semja við kröfu­hafa slita­bú­anna fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar. Í áskorun til for­seta Íslands segir að um alvar­legt trún­að­ar­brot sé að ræða. „Það er í verka­hring for­seta að sjá til þess að Alþingi sé í lagi,“ segir Björgvin í sam­tali við Stundina. „Að mínu mati hefur hann ekki verið að vinna vinn­una sína.“

„Það er í verka­hring for­seta að sjá til þess að Alþingi sé í lagi.“

Þetta rímar við sjón­ar­mið Svans Krist­jáns­sonar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, en hann sagði á Facebook-síðu sinni fyrr í vik­unni að for­seti Íslands mætti ekki, að hans mati, sitja hjá aðgerð­ar­laus nú þegar hyl­djúp gjá hefur mynd­ast á milli þorra þjóð­ar­innar og þing­meiri­hluta eða rík­is­stjórnar. „Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, hand­valdi Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann situr svo lengi sem for­set­anum þókn­ast. Í valdi for­set­ans er að skipa nýja rík­is­stjórn - síðan yrði rofið þing og boðað til nýrra þing­kosn­inga.“ 

Stefnir í fjölmenn mótmæli á mánudag

Rúmlega 14 þús­und manns hafa nú skrifað undir und­ir­skrifta­lista þar sem þess er kraf­ist að Sig­mundur Davíð láti af störfum sem for­sæt­is­ráð­herra og hverfi af þingi. Þá segj­ast um 1.700 manns ætla að mæta á mót­mæli á Aust­ur­velli mánu­dag­inn 4. apríl næst­kom­andi þegar þing kemur saman á ný eftir páska­frí. „Rík­is­stjórnin er rúin trausti og and­lýð­ræð­is­legt að hún skuli ætla sér að sitja áfram. Rík­is­stjórn­inni ber að virða lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­reglur og fara frá sem fyrst,“ segir meðal ann­ars í texta með við­burð­inum á Facebook. Krafa mót­mæl­anna verður því að fá kosn­ingar strax. 

„Í raun og veru finnst mér að mót­mælin ættu að vera á Bessa­stöðum,“ segir Björgvin, sem telur afar ólík­legt að þing­meiri­hluti muni sam­þykkja van­traust­s­til­lögu eða þing­rof. „Það þarf að losa okkur við spill­ing­una á Alþingi og það er bara einn maður sem getur gert það - for­seti Íslands.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár