Áslaug Arna fullyrti ranglega að ríkisútgjöld væru nánast hvergi hærri meðal þróaðra ríkja en á Íslandi

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, ritari Sjálfstæðis­flokksins og formaður allsherjar- og menntamála­nefndar, flutti jómfrúar­ræðu sína á Alþingi í gær.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, þingkona og ritari Sjálfstæðis­flokksins og formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, sagði í jómfrúar­ræðu sinni á Alþingi í gær að útgjöld ríkisins sem hlutfall af lands­framleiðslu væru nánast hvergi hærri meðal þróaðra ríkja en á Íslandi. 

Á annan tug þróaðra ríkja, meðal annars flest nágranna­ríki Íslands, verja hærra hlutfalli af vergri lands­framleiðslu til ríkis­útgjalda heldur en íslenska ríkið. Í þessum hópi eru til dæmis Danmörk, Finnland, Svíþjóð, Noregur, Þýskaland og Frakkland. Þá eru meðal­útgjöld hins opinbera á evru­svæðinu mun hærri en á Íslandi.

„Íslendingar hafa, því miður, fengið að kynnast of mörgum og of miklum sveiflum í hagkerfinu. Okkur hefur tekist illa að tryggja stöðug­leika og við virðumst of oft missa tökin, ekki síst þegar vel gengur. Áskorun okkar nú er að viðhalda þeirri góðu stöðu sem við búum við í dag og styrkja um leið þær stoðir sem velferð okkar og öryggi hvílir á,“ sagði Áslaug Arna í ræðu sinni um fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar. „Útgjöld ríkisins sem hlutfall af lands­framleiðslu eru eiginlega hvergi hærri meðal þróaðra ríkja en á Íslandi. Ef enn skortir fé í viss verkefni, sem við erum sammála um að geri, hlýtur vanda­málið að liggja í augum uppi. Það felst í rangri forgangs­röðun og nýtingu þeirra fjármuna sem fyrir eru.“

Eurostat og OECD taka árlega saman gögn um fjármál hins opinbera þar sem bera má saman hagstærðir ríkja. Samkvæmt gögnunum, sem aðgengileg eru á netinu, er Ísland langt frá því að vera það þróaða ríki sem ver mestum fjármunum til opinberra útgjalda miðað við lands­framleiðslu. 18 ríki voru framar Íslandi í röðinni árið 2015 og 15 ríki árið 2014 samkvæmt upplýsingum á vef Eurostat. Staðan er svipuð ef litið er fleiri ár aftur í tímann. Þá eru meðal­útgjöld hins opinbera á evru­svæðinu mun hærri en á Íslandi.

Á vef OECD má sjá hlutfall ríkis­útgjalda af vergri lands­framleiðslu hjá 30 ríkjum samtak­anna og eru þar 12 ríki með hærri ríkis­útgjöld en Ísland. Hlut­fallið er 45,3 prósent hjá Íslandi en hátt í 60 prósent hjá Belgíu, Danmörku, Frakk­landi og Finnlandi. 

Í jómfrúar­ræðu sinni sagði Áslaug Arna að þess væru fjölmörg dæmi á liðnum árum að skamm­sýnir stjórn­málamenn ynnu að því að auka umsvif ríkisins á öllum sviðum og „blása ríkis­báknið út burt séð frá því hvort á því var nokkur nauðsyn“. Reikningurinn hafi síðan verið sendur skatt­greiðendum fram­tíðarinnar. „Stjórn­málamenn hafa verið, og eru sumir hverjir enn, ósparir á annarra manna fé og telja ekkert athuga­vert við stóraukin og ósjálfbær útgjöld ríkis­sjóðs ár eftir ár,“ sagði Áslaug Arna. 

Sjá einnig:

Segir að heilbrigðis­þjónustan á Íslandi sé
betri en þjónustan á hinum Norður­löndunum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár