Ásgerður borgaði og fer í nýtt meiðyrðamál

Eiður Guðnason krafinn um milljónir: „Vitleysis­gangur". Ásgerður borgaði 750 þúsund vegna DV. Krafin um tæpa milljón.

Meiðyrði
Meiðyrði Ásgerður Jóna Flosa­dóttir stefnir Eiði Guðn­a­syni til að greiða bætur. Eiður hefur gagn­stefnt henni.

„Merkilegast finnst mér að hún skyldi hafa uppgötvað þessi ummæli eftir fjögur ár og þá ákveðið að stefna mér,“ segir Eiður Guðnason, fyrr­verandi ráðherra og sendi­herra, sem Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, stofnandi Fjölskyldu­hjálparinnar, hefur stefnt til greiðslu tveggja milljóna króna vegna ummæla sem fyrir tæpum fimm árum birtust á bloggi Eiðs.

Annað meiðyrðamál Ásgerðar

Þetta er í annað sinn á tæpum mánuði sem Ásgerður Jóna rekur meiðyrðamál fyrir dómstólum. Aðeins er rúmur mánuður síðan hún tapaði máli gegn fyrr­verandi ritstjóra DV. Þar krafðist hún hárra bóta vegna frétta um að hún hefði tússað á bíl nágranna síns. Hún unir dómnum og hefur þegar greitt 750 þúsund krónur sem henni var gert að greiða hinum stefnda í málinu. 

Mál Ásgerðar gegn Eiði snýst um ummæli sem hann lét falla á bloggi sínu um að Ásgerður Jóna, sem stýrði útvarps­þætti á Útvarpi Sögu, væri „ekki talandi“ og „ætti aldrei að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár