Arður, afskriftir og gjaldþrot hjá Boga

Ekkert fékkst upp í kröfur þegar eign­ar­halds­félag Boga Óskars Páls­sonar var úrskurðað gjald­þrota og verða því 308 millj­óna skuldir afskrif­aðar. Hann breytti nafni félags­ins nokkrum vikum fyrir gjald­þrotið. Félagið styrkti Fram­sóknar­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann tók sér hálfan millj­arð í arð árið 2007.

Arður, afskriftir og gjaldþrot hjá Boga
Dreginn fyrir dóm Arion banki hefur dregið Boga Pálsson fyrir dóm og sakað hann um að blekkja bank­ann og fremja fjár­svik. Mynd: 365 ehf / Valgarður Gíslason

Engar eignir fund­ust í þrota­búi KSR ehf. eign­ar­halds­fé­lagi Boga Óskars Páls­sonar, fyrrum stjórn­ar­manns Exista og mágs Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Félagið átti stóran hlut í Exista. Ríflega sex millj­arða króna skuldir félags­ins voru færðar niður eftir hrun. Mála­ferli Arion banka gegn Boga standa enn yfir vest­an­hafs.

Sex milljarða skuldir voru færðar niður

Skiptum bús­ins lauk 6. ágúst síð­ast­lið­inn. Lýstar kröfur voru tæp­lega 308 millj­ónir króna. Bogi er bróðir Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Hann var enn fremur for­maður við­skipta­ráðs frá 2000 til 2004.

Félagið KSR ehf. hét áður Stofn ehf. og var eign­ar­halds­fé­lag Boga og fjöl­skyldu sem hélt utan um hluta­bréf í Exista upp á 4,8 millj­arða króna, sem urðu verð­laus við efna­hags­hrunið. Nafni félags­ins var breytt 26. mars síð­ast­lið­inn, tutt­ugu dögum áður en hér­aðs­dómur úrskurð­aði að taka skyldi búið til gjald­þrota­skipta.

Bogi var um tíma stjórn­ar­maður í Exista. DV greindi frá því árið 2012 að 6,3 millj­arða króna skuldir félags­ins hafi verið færðar niður að fullu þegar hluti lána­safns gamla Kaup­þings var fluttur yfir í Arion banka í kjöl­far hruns­ins árið 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár