Mynd: AMG

Með hauskúpur á bakinu og fjölskylduna í faðminum

Vít­isengl­arnir til­heyra Hells Angels, sem eru skil­greind sem skipu­lögð glæpa­sam­tök víða um heim, þar á meðal af íslenskum yfir­völdum. Meðlimir Vít­isengla segj­ast hins vegar ofsóttir af yfir­völdum að ósekju og að margt sem sagt er um klúbb­inn eigi ekki við rök að styðj­ast. Atli Már Gylfason fór á fund Vít­isengla á afskekktum stað í Borg­ar­firð­inum, þar sem þeir voru sam­an­komnir með fjöl­skyldum sínum og útskýrðu af hverju þeir leit­uðu til þess­ara sam­taka.

Íslensk stjórn­völd líta á mót­or­hjóla­klúbb­inn Hells Angels sem skipu­lögð glæpa­sam­tök. Á okkar móð­ur­máli hafa með­limir sam­tak­anna verið kall­aðir Vít­isenglar: vél­hjóla­menn sem fylgja hvorki lögum né reglum, fjár­magna sig með fjár­kúg­unum og fíkni­efna­sölu og vekja ótta meðal almenn­ings. Íslensku Vít­isengl­arnir fagna fimm ára afmæli í ár en það var í mars árið 2011 sem þeir fengu opin­ber­lega inn­göngu inn í móð­ur­sam­tökin sem stofnuð voru árið 1948 í Fontana í Kali­forníu. Hingað til hafa þeir neitað öllum fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um við­töl eða umfjöllun um íslensku deild sam­tak­anna en í byrjun sept­em­ber á þessu ári komst á sam­band milli blaða­manns Stund­ar­innar og með­lima Hells Angels á Íslandi. Eftir nokkrar við­ræður buðu sam­tökin blaða­manni að vera við­staddan fund með­lima Hells Angels sem átti að fara fram utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Eina ósk Hells Angels var að ekki yrði gefin upp nákvæm stað­setn­ing á fund­inum. Blaða­maður gekkst við því enda fáheyrt að fjöl­mið­ill fái slíkt boð og þá skiptir engu hvort litið er á íslensku deild Hells Angels eða á heims­vísu. Blaða­maður getur þó sagt að fund­ur­inn fór fram í Borg­ar­firði laug­ar­dag­inn 1. októ­ber síð­ast­lið­inn.
 
Um er að ræða einu rót­grón­ustu vél­hjóla­sam­tök í heim­inum með með­limi og deildir í yfir þrjá­tíu löndum. Eins og áður segir voru Hells Angels stofnuð í Kali­forníu árið 1948 af fyrr­ver­andi her­mönnum í banda­ríska flug­hernum. Sjálft nafnið er sagt fengið frá hópi flug­manna sem flugu orr­ustu­þotum í fyrri og seinni heims­styrj­öld­inni og voru kall­aðir Hells Angels, eða „Vít­isenglar“. Síðan þá hefur klúbb­ur­inn vaxið hratt en hans varð fyrst vart í Evrópu í kringum 1969 en þá voru tvær deildir stofn­aðar í London. Samkvæmt sögu Hells Angels, sem hefur verið rakin í fjöl­mörgum heim­ild­ar­myndum, sjálfsævi­sögum og umfjöll­unum, þá bauð Bít­ill­inn George Harrison með­limum Hells Angels í Kali­forníu í Apple Records stúd­íóið árið 1968 en sam­kvæmt Chris O‘Dell, einum af starfs­mönnum Bítlanna á þessum árum, þáðu tveir þekktir með­limir sam­tak­anna boðið og kíktu í heim­sókn. Saga sam­tak­anna er gríð­ar­lega áhuga­verð en á sama tíma er hún blóði drifin og því ekki að ástæðu­lausu sem yfir­völd líta á Hells Angels sem skipu­lögð glæpa­sam­tök. Meðlimir sam­tak­anna hér á landi vilja þó taka fram að Hells Angels hafi aldrei, hvorki sem sam­tök eða klúbbur, verið dæmd fyrir lög­brot. Sömu menn við­ur­kenna þó að hafa brotið lögin en það hafi ekki verið í nafni klúbbs­ins, þau lög­brot séu mis­tök sem þeir sjálfir eru per­sónu­lega ábyrgir fyrir og teng­ist ekki þátt­töku þeirra í starfi Hells Angels.
 
Það verður að við­ur­kenn­ast að það fylgdi því dálítið stress að hitta íslensku Vít­isengl­anna. Ef við lítum til baka þá hafa sam­skipti fjöl­miðla­manna við með­limi vél­hjóla­sam­taka hér á landi, sem kenna sig við 1% klúbbanna (þá klúbba sem gefa sig út fyrir að fara ekki að lögum og reglum), ekki alltaf endað vel. Þannig braut Jón Trausti Lúth­ers­son, einn af þeim sem fyrst var kenndur við Hells Angels hér á landi, sér leið inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofur DV ásamt félögum sínum í októ­ber árið 2004 og tók einn af fyrr­ver­andi rit­stjórum blaðs­ins háls­taki auk þess að valda skemmdum á sjálfri skrif­stof­unni. Meðlimur sam­tak­anna sem blaða­maður ræddi við ítrek­aði þó að ekk­ert væri að ótt­ast í þetta skiptið, þetta væru fjöl­skyldu­menn sem ætl­uðu að hitt­ast, borða saman og ræða það sem næst væri á dag­skrá. Ótti blaða­manns væri byggður á sömu rang­hug­myndum og ofsóknir yfir­valda væru byggðar á. Sömu rang­hug­myndir og urðu til þess að hóp­ur­inn hafi ákveðið að tjá sig um mál klúbbs­ins í fjöl­miðlum. Eitthvað sem ger­ist í raun og veru aldrei. Sama hvert litið er í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vélhjólagengi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár