Almannatengill enn að störfum hjá Sigmundi

End­ur­skoðun upp­lýs­inga- og sam­skipta­mála heldur áfram í stjórn­ar­ráð­inu undir hand­leiðslu Hrannars Pét­urs­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra sam­skipta­sviðs Vodafone. „Sér­stak­lega verði reynt að ná betur til ungs fólks.“

Almannatengill enn að störfum hjá Sigmundi
Nýlega fór fram hátíð­leg athöfn við stjórn­ar­ráðið þegar nýtt skilti var afhjúpað. Með Sigmundi Davíð á mynd­inni eru m.a. Sigurður Már Jónsson (þriðji frá vinstri) og Hrannar Pét­urs­son (lengst til hægri) sem tóku mynd­skeið af athöfn­in­inni með far­símunum sínum.

„Ráðn­ingin var fram­lengd um nokkra mán­uði. Vinnan felst í því að skoða og inn­leiða ákveðnar breyt­ingar í stjórn­ar­ráð­inu, það er að segja öllum ráðu­neytum, sam­hæfa vinnu­lag, ein­falda og gera sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf skil­virk­ari,“ segir Hrannar Pét­urs­son almanna­teng­ill sem starfað hefur sem verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá því í des­em­ber í fyrra. Áður var hann fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs hjá Vodafone.

Þegar for­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnti um ráðn­ingu Hrannars á sínum tíma kom fram að hann hefði aðeins verið ráð­inn til tveggja mán­aða til að stýra heild­ar­end­ur­skoðun á stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins í upp­lýs­inga- og sam­skipta­málum. Horft væri til þess að almenn­ingur – þar með talin fyr­ir­tæki, stofn­anir og aðrir lög­að­ilar – fengi aðgengi­legar og skýrar upp­lýs­ingar um rétt­indi sín og skyldur og nyti nauð­syn­legra leið­bein­inga. 

Þá kom fram að fram­setn­ing upp­lýs­inga á vef Stjórn­ar­ráðs­ins og ein­stakra ráðu­neyta yrði end­ur­skoðuð og horft til sam­fé­lags­miðla og ann­arra miðla sem gegna vax­andi hlut­verki í upp­lýs­inga­gjöf. Auk þess yrði reynt að ná betur til ungs fólks. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar hefur þessi vinna reynst tíma­frek­ari en gert var ráð fyrir að hún yrði. Er því áfram þörf á starfs­kröftum Hrannars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár