Afhenda ráðherra undirskriftir í dag: „Réttindi barnanna hafa aldrei verið skoðuð“

Rúmlega fimm þús­und manns krefj­ast þess að Hanif og Jónína fái að dvelja áfram á Íslandi. Samtök sem gæta hags­munum barna skora á stjórn­völd að virða rétt­indi barna og Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Afhenda ráðherra undirskriftir í dag: „Réttindi barnanna hafa aldrei verið skoðuð“

Rúmlega fimm þús­und manns hafa skrifað nafn sitt á und­ir­skrift­ar­lista þar sem þess er kraf­ist að hjón­unum Saad og Fadilu, ásamt börnum þeirra Hanif og Jónínu, verði ekki vísað frá Íslandi. Vinkona fjöl­skyld­unnar, Morgane Priet-Maheo, mun afhenda und­ir­skrift­irnar í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu klukkan þrjú í dag. Líkt og Stundin greindi frá var brott­vísun fjöl­skyld­unnar frestað í síð­ustu viku eftir að barna­vernd greip inn í málið. Elín Árna­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar, segir stöðu fjöl­skyld­unnar engu að síður óbreytta og brott­vísun enn yfir­vof­andi. „Það hefur ekk­ert verið dregið til baka, þrátt fyrir til­kynn­ingu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um að það eigi að end­ur­skoða verk­lag,“ segir Elín, en í kjöl­far frétta­flutn­ings af máli fjöl­skyld­unnar sendi inn­an­rík­is­ráðu­neytið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kom meðal ann­ars fram að ráðu­neytið hafi þegar hafið skoðun á því hvort þörf sé á að bæta verk­lag þegar börn eigi í hlut „svo tryggt sé að hags­munir barna séu ávallt hafðir í fyr­ir­rúmi og að alþjóð­legar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár