Ævintýralegur hagnaður eigenda Brúneggja meðan þeir blekktu neytendur

Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson högn­uð­ust hvor um sig um 100 millj­ónir króna í fyrra í gegnum einka­hluta­fé­lög sín sem eiga eggja­búið Brúnegg, á sama tíma og „neyt­endur voru blekktir“ með mark­aðs­setn­ingu þeirra. Kristinn kennir lélegu eft­ir­liti að hluta um að þeir hafi við­haldið óásætt­an­legum aðstæðum.

Ævintýralegur hagnaður eigenda Brúneggja meðan þeir blekktu neytendur
Eigendur Brú­neggja Bræð­urnir Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson eiga Brúnegg í gegnum einka­hluta­fé­lög sín. Mynd: Brúnegg

Eigendur Brú­neggja, sem hafa sann­fært almenn­ing um að hænur á búum þeirra njóti „ástar og umhyggju“ í vist­vænni fram­leiðslu, en hafa árum saman brotið reglu­gerðir um dýra­vernd og ekki upp­fyllt skil­yrði um vist­væna land­bún­að­ar­fram­leiðslu, högn­uð­ust ævin­týra­lega í fyrra á sama tíma og loka átti hænsna­búum þeirra vegna slæms aðbún­aðar.

Bræð­urnir Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson eiga sitt hvorn helm­ings­hlut­inn í Brú­neggjum ehf. í gegnum einka­hluta­fé­lög sín. Þessi félög þeirra högn­uð­ust um tæpar hund­rað millj­ónir króna hvort árið 2015.

Seldu egg dýrari vegna dýraverndar

Á sama tíma og Brúnegg hafa hagn­ast veru­lega hafa for­svars­menn félags­ins meðal ann­ars beitt fyrir sig þeirri vörn gagn­vart athuga­semdum Mat­væla­stofn­unar við far­aldur fugla­kóleru á búum þeirra, að of kostn­að­ar­samt hafi verið að bólu­setja fugl­ana.

Brúnegg aug­lýsa vöru sína undir þeim for­merkjum að þau komi frá „frjálsum hænum“ og séu „vist­væn“. Þannig eru þau seld á um það bil 40% hærra verði en hvít búr­hænu­egg, eða á um 970 kílóið í stað tæpra 700 króna kílóið, sam­kvæmt umfjöllun Kast­ljóss­ins á Rúv. 

Síðla árs 2013 sendi dýra­læknir Mat­væla­stofn­unar atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu póst þar sem greint var frá því að Brúnegg væru að blekkja neyt­endur. „Mat­væla­stofnun telur að neyt­endur séu blekktir með merk­ingu eggja frá Brú­neggjum ehf,“ sagði í bréf­inu. Atvinnu­vega­ráð­herra, og þar með land­bún­að­ar­ráð­herra, á þeim tíma og yfir­maður ráðu­neyt­is­ins var Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem nú er for­sæt­is­ráð­herra. „Þrátt fyrir að Mat­væla­stofnun hafi ekki eft­ir­lit með vist­vænni fram­leiðslu, þá kemur aug­ljós­lega fram í eft­ir­lits­heim­sóknum að kröfur sem gerðar eru eru ekki upp­fylltar. Þess vegna vill Mat­væla­stofnun bera erindið undir ráðu­neytið. Hvernig skal halda áfram í mál­inu til að tryggja að neyt­endum séu veittar réttar upp­lýs­ingar með mat­vælum sem þeir kjósa að kaupa?“ Skrif­stofu­stjór­inn sagði málið verða skoðað, en Mat­væla­stofnun fékk aldrei svar við því hvernig bregð­ast ætti við. Ný lög um vel­ferð dýra tóku gildi ára­mótin á eftir. 

Skilaboð til neyt­endaFor­svars­menn Brú­neggja eggj­uðu neyt­endur til kaupa á grund­velli dýra­verndar.
Myndir frá hænsna­búi Brú­neggjaHænur hjá Brú­neggjum bjuggu raun­veru­lega við skelfi­legar aðstæður og for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins sinntu ekki til­mælum.

Töldu of dýrt að bólusetja - græddu tugi milljóna

Fram kom í skýrslu Mat­væla­stofn­unar að for­svars­menn Brú­neggja teldu of kostn­að­ar­samt að bólu­setja fugl­ana við henni. Árið 2012 kom fram að mýs hefðu hlaupið eftir eggja­færi­bandi, for­svars­menn Brú­neggja neit­uðu að koma upp hand­laugum og skil­greina hrein og óhrein svæði, auk þess sem of margir fuglar voru á hvern fer­metra. Þetta ár var met­hagn­aður hjá Brú­neggjum, tæp­lega 50 millj­ónir króna.

Sumarið 2013 var fugla­kólera enn að ganga á búum Brú­neggja, eins og kom fram hjá Mat­væla­stofnun: „Almennt verður að telja að vel­ferð og aðbún­aður hæn­anna sé ekki sem skyldi.“ Þetta ár högn­uð­ust Brúnegg um 42 millj­ónir króna. Á sama tíma þurftu varp­hæn­urnar að dvelja í tvo til þrjá mán­uði í hýs­ingu þar sem saur hafði flætt upp úr saur­geymslum.

Í við­tali við Bænda­blaðið 11. sept­em­ber 2014 virð­ist Kristinn óbeint játa að ekki tak­ist að halda fjölda hæna innan þeirra krafna sem gerðar eru.

„Við reynum að vera með níu til tíu fugla á fer­metra. Í drögum að nýrri reglu­gerð um aðbúnað varp­fugla í vist­vænni ræktun er talað um níu fugla á fer­metra að hámarki,“ sagði hann. Í umfjöllun Kast­ljóss kemur fram að sama ár hafi skoðun leitt í ljós að 13 fuglar voru á hvern fer­metra, 60% fleiri en heim­ilt er í vist­vænni fram­leiðslu.

Úr Bænda­blað­inuÍ umfjöllun Bænda­blaðs­ins kom fram að Gylfi sagði níu til tíu fugla vera á hvern fer­metra, en skoðun hafði leitt í ljós að þeir voru fleiri og umfram lög­legan fjölda.

Þá lýsti Kristinn degi í lífi varp­hænu á búi Brú­neggja í við­tali við Bænda­blaðið. „Þegar þær vakna á morgn­ana fá þær sér að borða og fara svo að huga að varpi. Þær verpa mest fyrri part dags. Síðan eftir hádegi, þegar þær eru farnar úr hreiðri, er blandað geði við aðrar hænur, sinna þörfum sínum og svo fara þær í svo­kallað ryk­bað. Þá þyrla þær ryki og und­ir­burð­inum yfir sig og hrista sig síðan vel.“

Í ljós hefur komið að híbýli hænsnanna upp­fylltu ekki þarfir þeirra og voru skað­legar heilsu þeirra í mörgum til­fellum. 95 pró­sent fugla á Staf­holts­veggjum, búi Brú­neggja, lifði við slæmt eða mjög slæmt ástand á fið­ur­ham, sem rekja má til vönt­unar á fóð­ur­línu, þrengsla, blauts und­ir­burðar og van­þrifa, sam­kvæmt frá­sögn Rúv.

„Kannski má segja að menn hafi gengið á lagið vegna þess að það var ekki nógu gott eft­ir­lit með því,“ sagði Kristinn Gylfi í sam­tali við Rúv. Spurður af frétta­manni Rúv hvort ábyrgð­ar­menn félags­ins hafi fallið í freistni vegna þess að ekki var eft­ir­lit með starf­semi þeirra og haft meiri fjölda fugla en leyfi­legt er á hvern fer­metra sagði Kristinn: „Já, það má vel vera, að svo hafi verið. Að menn hafi haft meira sjálf­dæmi um það hvað væri gott og eðli­legt varð­andi fjölda fugla per fer­meter. Það kann vel að vera. Eins og dæmin hafa sýnt. Við eft­ir­lit.“

Kristinn kvart­aði undan seina­gangi Mat­væla­stofn­unar við að veita starf­semi hans eft­ir­lit. „Við vorum bara fegnir því að Mat­væla­stofnun kom með sterkara eft­ir­lit. En það tók ansi mörg ár.“ 

Árin 2009 til 2016 hefur hagn­aður Brú­neggja ehf. verið vel yfir tvö hund­ruð millj­ónir króna sam­hliða því að þeir blekktu neyt­endur með mark­aðs­setn­ingu sinni, sam­kvæmt áliti Mat­væla­stofn­unar.

 

Viðtal Tryggva Aðal­björns­sonar, frétta­manns Rúv, við Kristinn Gylfa Jónsson.

Sektin aðeins rúmt prósent hagnaðarins

Mat­væla­stofnun beitti Brúnegg ehf. dag­sektum upp á 2,6 millj­ónir króna vegna skelfi­legra aðstæðna í fugla­búi sem sagt var vist­vænt, en síð­ustu sjö ár hefur hagn­aður Brú­neggja verið sam­tals 215 millj­ónir króna. 

Sektir Mat­væla­stofn­unar eru því aðeins 1,2 pró­sent af hagn­aði Brú­neggja á síð­ustu sex árum, sem er til­kom­inn meðal ann­ars með mark­aðs­setn­ingu á vöru sinni sem vist­vænni, án þess að hún hafi upp­fyllt skil­yrði sem vist­væn.

Þar með er ekki öll sagan sögð. Þannig hagn­að­ist eign­ar­halds­fé­lag Kristins Gylfa, Geysir-Fjár­fest­ing­ar­fé­lag ehf, sem á 50% hlut í Brú­neggjum, um 97 millj­ónir króna, aðeins á árinu 2015. Þar af eru vaxta­tekjur 42 millj­ónir króna og áhrif hlut­deild­ar­fé­laga tæpar 55 millj­ónir króna.

Björn, bróðir hans og með­eig­andi í Brú­neggjum, hagn­að­ist einnig um 97 millj­ónir króna í einka­hluta­fé­lagi sínu Bala ehf, sem á hin 50 pró­sentin í Brú­neggjum, á árinu 2015. Þar af fékk félag hans 42,5 millj­ónir króna í vaxta­tekjur og 55 millj­ónir krónur vegna áhrifa hlut­deild­ar­fé­laga, eða nákvæma­lega sömu upp­hæð og félag bróður hans fékk vegna hlut­deild­ar­fé­laga.

Kristinn Gylfi JónssonKennir eft­ir­lits­stofn­unum um að hann hefði við­haldið starf­semi sem braut reglur.

„Óásættanlegt með öllu“

Sama ár og bræð­urnir högn­uð­ust um sam­tals tæpar 200 millj­ónir króna í gegnum einka­hluta­fé­lög sín sem eiga Brúnegg, sögðu dýra­læknar Mat­væla­stofn­unar frá því að ástandið hefði versnað á búum þeirra þar sem þeir fram­leiddu egg sem þeir sögðu neyt­endum að kaupa vegna þess að hæn­urnar nytu „ástar og umhyggju“ en lifðu við aðstæður sem voru á köflum „óásætt­an­legar með öllu“. 

Árið 2015, þegar eig­end­urnir högn­uð­ust um tæpar 200 millj­ónir, sendi Mat­væla­stofnun fjölda beiðna um úrbætur á aðbún­aði dýr­anna og hót­aði að svipta eig­end­urna vörslu dýr­anna.

Þegar land­bún­að­ar­ráðu­neytið lagði af vist­væna vottun haustið 2015 kvart­aði Kristinn í sam­tali við Rúv. „Það er mjög miður að land­bún­að­ar­ráðu­neytið og stjórn­völd skyldu ekki hafa fylgt eftir eft­ir­liti með vist­vænu reglu­egerð­inni og sér­stak­lega fyrir okkur í eggja­fram­leiðsl­unni sem höfum lagt mikla áherslu síð­ustu ár, að bjóða vist­væn egg.“ Sama dag var honum til­kynnt af Mat­væla­stofnun um lokun á starf­semi hans, en af henni varð ekki og neyt­endur fengu engar upp­lýs­ingar.

6. októ­ber 2015, mán­uði eftir að frestur til úrbóta rann út, hafði ástandið versnað á Staf­holts­veggjum. Músa­eitur í eggja­geymslu, lirfur, dauðar mýs, fið­ur­lausir fuglar, 90% fleiri fuglar en mátti, á blautu und­ir­lagi, fastar hænur milli rimla, amm­on­íaks­mettað loft, upp­fullar saur­geymslur og saur á gólfi, alls 21 frá­vik frá lögum og reglum um dýra­vernd og mat­væla­fram­leiðslu, þar af 9 alvar­leg. Á Teigi í Mos­fellsbæ voru dauðir fuglar á jörð­inni, upp­þorn­aðir og á kafi í skít, og aðrir með ein­kenni fugla­kóleru, þegar Mat­væla­stofnun kom að. Í sam­tali við Rúv sagði Kristinn Gylfi hænur lík­lega hafa kroppað skít yfir aðrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár