Aðstoðarmenn fatlaðra rukkaðir í líkamsræktarstöð

Tveir fatl­aðir ein­stak­lingar geta ekki stundað lík­ams­rækt í Reebok Fitness nema aðstoð­ar­menn þeirra séu sjálfir með áskrift að stöð­inni. Mála­miðlun um eitt árskort, sem kostar rúm­lega 70 þús­und, fyrir níu starfs­menn sam­býl­is­ins var hafnað. Tölvu­kerfið býður ekki upp á það, segir fram­kvæmda­stjór­inn.

Aðstoðarmenn fatlaðra rukkaðir í líkamsræktarstöð
Aðstoð­ar­mönnum mein­aðar aðgangur Lík­ams­rækt­ar­stöðin Reebok Fitness krafð­ist þess að aðstoð­ar­menn fatl­aðra ein­stak­linga í Hafn­ar­firði væru með áskrift að stöð­inni. Mynd: Shutterstock

Tveimur fötl­uðum ein­stak­lingum hefur verið meinað að fara ásamt aðstoð­ar­mönnum í lík­am­rækt­ar­stöð­ina Reebok Fitness sem er stað­sett í húsi Ásvalla­laugar í Hafn­ar­firði. Ástæðan er sú að aðstoð­ar­menn hinna fötl­uðu eru ekki kort­hafar í lík­ams­rækt­inni.

Uppfært: Vegna frétta­flutn­ings Stund­ar­innar af mál­inu hefur Reebok Fitness sent frá sér yfir­lýs­ingu. Þar biðj­ast þau afsök­unar og segj­ast munu læra af mál­inu. Jafn­framt hefur verið búið svo um hnút­ana að aðstoð­ar­fólk ein­stak­linga með fötlun fái frían aðgang að lík­ams­rækt­ar­stöðvum Reebok Fitness.

Starfs­maður á sam­býli í Hafn­ar­firði, þar sem ein­stak­ling­arnir búa, seg­ist í sam­tali við Stundina afar hneyksl­aður á fyr­ir­komu­lag­inu. „Við höfum alltaf verið með fólkið okkar í lík­ams­rækt og höfum aldrei þurft að greiða fyrir aðstoð­ar­menn­ina. Þegar okkur var til­kynnt að fyr­ir­komu­lagið væri þannig buð­umst við til að kaupa kort sem starfs­menn sam­býl­is­ins gætu samnýtt þegar við fylgdum heim­il­is­manni í lík­ams­rækt. Því var hafnað líka.“

Guðrún Erla Torfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Reebok Fitness, segir ástæð­una þá að tölvu­kerfið bjóði ekki upp á það. „Það verður að vera ein kennitala og hún verður að stemma við augn­myndir,“ segir Guðrún Erla.

Níu starfs­menn vinna á sam­býl­inu og veltur á vakta­skipan hver þeirra fylgir skjól­stæð­ingum í lík­ams­rækt­ina. „Það er ótrú­lega lélegt að krefj­ast þess að við kaupum níu áskriftir að stöð­inni svo við getum sinnt starfi okkar. Árskort fyrir einn starfs­mann kostar rúmar 70 þús­und krónur. Það gengur auð­vitað ekki upp og við neyð­umst til að færa okkar fólk í aðra stöð,” segir starfs­mað­ur­inn.

Guðríður Erla Torfa­dóttir fram­kvæmda­stjóri Reebok FitnessÞekkti ekki til máls­ins en vildi skoða það.

Guðrún Erla seg­ist í sam­tali við Stundina ekki þekkja til þessa máls. „Við erum samt alveg til­búin að skoða þetta og hjá okkur hafa verið gestir með fylgd­ar­menn, við erum til dæmis með samn­ing við Bata­stöð­ina. Gestir þaðan geta farið inn með tvo fylgd­ar­menn án þess að greitt sé sér­stak­lega fyrir,” segir Guðrún Erla.

Fyr­ir­komu­lag svo­kall­aðra „öryrkja­korta“ er einnig gagn­rýni­vert að mati starfs­manns sam­býl­is­ins. Ein­vörð­ungu sé hægt að nota slík kort í þeirri stöð þar sem það er keypt og aðeins sé hægt að fá þau í þremur stöðvum; Ásvalla­laug, Kópa­vogs­laug og Salalaug. „Það er ætl­ast til þess að fólk með fötlun stundi lík­ams­krækt í sér­stökum stöðvum en því miður verður að segj­ast að aðbún­að­ur­inn er mun verri í sund­lauga­stöðv­unum þremur en í stóru stöðv­unum. Þetta fyr­ir­komu­lag hentar oft ekki okkar fólki sem þarf að kom­ast í sér­stök lík­ams­þjálf­un­ar­tæki,“ segir starfs­mað­ur­inn. Þetta hefur leitt af sér að í sumum til­vikum hefur þurft að kaupa kort fullu verði fyrir fatl­aða ein­stak­linga, þótt sér­stök öryrkja­kort séu ætluð þeim.

Guðrún Erla seg­ist ekki geta svarað fyrir af hverju fyr­ir­komu­lagið sé svona og vís­aði á eig­anda Reebok Fitness, Guðmund Ágúst Pét­urs­son. Hann svar­aði því til að sala og útgáfa öryrkja­korts­ins sé til komin vegna útboðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og Kópavogs – og grund­vall­ist á samn­ingi við fyrr­nefnd tvö bæj­ar­fé­lög. Þá sagði Guð­mundur Ágúst að það væri fram­kvæmda­stjór­ans, Guðrúnar Erlu, að svara fyrir fyr­ir­komu­lag öryrkja­kort­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár