Álasund í Vestur-Noregi Álasund liggur miðja vegu milli Þránd­heims og Björg­vinjar. Mynd: Shutterstock

10 hlutir sem ég elska við Noreg

Noregur er meira en bara hærri laun og betri vinnu­tími. Freyja Búa­dóttir, brott­fluttur Íslend­ingur, segir frá því sem henni þykir best.

Vissu­lega er ýmis­legt sem ég sakna við Ísland, fjar­lægðin gerir fjöllin blá, en það eru líka ástæður fyrir því að ég flyt ekki til baka. Noregur er frá­bært land og hér eru 10 hlutir sem mér líkar betur við Noreg heldur en Ísland. Einnig valdi ég Suður-Noreg af ástæðu.

1. Hvítar strendur og heit sumur

Ramberg-strönd í Lofoten
Ramberg-strönd í Lofoten

Síðasta sumar eyddi ég ómældum tíma á strönd­inni í 30-32 stiga hita, synd­andi í sjónum og grill­andi pulsur á strönd­inni. Það er svo dásam­legt að búa í landi þar sem það kemur alvöru sumar, þar sem maður getur hoppað út í sum­ar­kjól og það er heitt! 


2. Ekkert rok

Bærinn Olden í Noregi
Bærinn Olden í Noregi

Ég get næstum talið á fingrum ann­arrar handar hversu oft kemur rok hjá mér, ég fer í göngutúr dag­lega með hund­inn minn og við löbbum nær und­an­tekn­inga­laust í logni. Ég næ varla að venj­ast því, því­lík dásemd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár