10 ástæður fyrir því að ég fer aftur og aftur í Þjórsárver

Víðernin, heið­ar­gæsin, feg­urðin eru á meðal þess sem heillar Tryggva Felixson við Þjórs­ár­ver. Hann fer þangað aftur og aftur, á hverju sumri helst og segir okkur af hverju.

10 ástæður fyrir því að ég fer aftur og aftur í Þjórsárver

Sum­ar­ferð í Þjórs­ár­ver er orðin fastur liður í lífi mínu. Ég hef víða farið um hálendið og upp­lifað frið­sæld og feg­urð þess. Það er sann­kölluð lífs­fyll­ing. En það er eitt­hvað alveg sér­stakt sem kallar í Þjórs­ár­verum. Hér eru 10 ástæður fyrir því:

1. Hjarta landsins

Nátt­úru­fræð­ar­inn okkar góði, Guð­mundur Páll heit­inn, hefur lýst því að í Þjórs­ár­verum sé að finna hjarta lands­ins. Hann hefur rétt fyrir sér. Ég hef heyrt hjarta lands­ins slá þar þegar sólin slær geislum sínum á Hjarta­fell.

2. Veröld andstæðna

Þjórs­ár­ver er ver­öld and­stæðna. Jök­ull­inn og vatnið sem frá honum streymir sem ár, lækir, kvíslar og tjarnir eru lífæð gróð­urs og dýra. Þar sem þessi lífæð nær ekki til, blasir við auðn og eyði­mörk. Undir gróðr­inum leyn­ist svo víða sífreri. Þar sem gróður klæðir sífrera í íslensku sumri verður til heill­andi mósaik.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu