Vill að bankaskattur verði hækkaður á ný til að auka tekjur ríkissjóðs um sex milljarða

Þingmaður Flokks fólksins vill að banka­skattur verði hækkaður aftur í það sem hann var áður en ríkis­stjórnin ákvað að lækka hann til að auka svigrúm banka til að takast á við kórónu­veiru­faraldurinn.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, þingmaður Flokks fólksins, hefur lagt frambreytingar­tillögu við bandorm vegna fjár­laga­frum­varpsins sem felur í sér að banka­skattur verði hækkaður í það sem hann var í byrjun árs í fyrra. Þetta telur hún að muni skila ríkis­sjóði sex milljörðum króna í viðbótar­tekjur á ári.

Í greinar­gerð með tillög­unni segir Ásthildur Lóa að lækkun banka­skattsins í fyrra hafi ekki skilað þeim árangri sem stjórn­völd gerðu ráð fyrir.

Sér­stakur skattur á fjár­mála­fyr­ir­tæki, svo­kall­aður banka­skatt­ur, var lækk­aður í fyrra úr 0,376 í 0,145 pró­sent á heild­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna. Alls borga fimm fjár­mála­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki.

Fyrir vikið lækk­aði álagður banka­skattur sem rík­is­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­sent.

Áætlað er að hann verði 4,8 millj­arðar króna í ár og tæp­lega 5,3 millj­arðar króna á næsta ári.

Skörp lækkun banka­skatts­ins, hefur ekki skilað því að vaxta­munur banka hafi lækkað sem neinu nemur en spilað inn í miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa í þeim bönkum sem skráðir eru á mark­að.

Ætlaði að lækka skattinn í skrefum

Síð­asta rík­is­stjórn, sem nú hefur end­ur­nýjað sam­starf sitt, hafði lengi stefnt að því að lækka skatt­inn, sem hafði skilað rík­is­sjóði miklum tekjum í kjöl­far banka­hruns­ins, fyrst með að leggj­ast af krafti á þrotabú föllnu bank­anna og síðan með því að leggj­ast á starf­andi íslenska við­skipta­banka.

Sam­tök fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja höfðu árum saman kvartað tölu­vert undan banka­skatt­in­um, sagt að hann dragi úr sam­keppn­is­hæfni íslenska banka­­kerf­is­ins og leiði til verri kjara fyrir almenn­ing.

Frum­varp um að lækka banka­skatt­inn í skrefum var lagt fram 2018 og sam­kvæmt því átti það ferli að eiga sér stað milli 2020 og 2023. Í lok þess tíma­bils átti skatt­ur­inn að verða 0,145 pró­sent.

Í júní 2019 var ákveðið að fresta þessum áformum um eitt ár og að lækkun skatts­ins myndi hefj­ast 2021 en yrði komin að öllu leyti til fram­kvæmda á árinu 2024. Þær breyt­ingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efna­hags­lífi, aðal­­­­­­­lega vegna gjald­­­­þrots WOW air og loðn­­­u­brests.

Gríð­ar­legur hagn­aður í heims­far­aldri

Í kjöl­far kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins var lækk­­un­inni svo flýtt og gjald­hlut­­fallið var fært niður í 0,145 pró­­sent vegna skulda í árs­­lok 2020. Hún kom því öll til fram­kvæmda í fyrra í stað þess að verða í skrefum á fjórum árum.

Auk þessa var sveiflu­jöfn­un­ar­auki á eigið fé banka afnumin tíma­bundið og stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent, sem hratt af stað mik­illi aukn­ingu á virði eigna sem bankar sýsla með og fjár­magna, sér­stak­lega hluta­bréfa og íbúða. Breyt­ing­una má glöggt sjá í uppgjörum bank­anna síðan að þetta var ákveð­ið.

Eftir að hafa tapað sam­tals 7,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 end­uðu stóru bank­arnir þrír með sam­eig­in­legan hagnað upp á 29,8 millj­arða króna á öllu síð­asta ári.

Í ár hefur hagn­að­ur­inn verið enn meiri. Sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra var rúm­lega 60 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Það er meiri hagn­aður en stóru bank­arnir þrír hafa hagn­ast innan árs frá árinu 2015.

Þegar mark­aðsvirði þeirra þriggja banka sem skráðir eru á mark­aði er skoðað er ljóst að ákvarð­anir stjórn­valda og seðla­banka, meðal ann­ars skörp lækkun banka­skatts, hefur leitt af sér miklar hækk­anir á virði hluta­bréfa. Á einu ári hafa hluta­bréf í Arion banka hækkað um 104 pró­sent, hluta­bréf í Kviku banka um 73 pró­sent og bréf í Íslands­banka hafa hækkað um 55 pró­sent frá því í sum­ar, þegar hann var skráður á mark­að.

Vill framlengja „Allir vinna“ í eitt ár

Ásthildur Lóa lagði einnig til að átakið „Allir vinna“ verði framlengt um eitt ár.

Kjarninn greindi frá því í gær að meirihluti efnahags- og við­skipta­nefndar hefði ákveðið að leggja til að haldið verði tíma­bundið áfram að fella niður virð­is­auka­skatt á starf­semi tengdri bygg­ing­ar­fram­kvæmdum og við­haldi hús­næðis í gegnum „Allir vinna“-átakið að hluta fram eftir næsta ári, þrátt fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi lagst hart gegn því. Í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins sem skilað var inn til nefnd­ar­innar var fram­leng­ingin sögð óþörf og varað við að hún gæti valdið ofþenslu.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans afgreiddi meiri­hlut­inn álit sitt á fundi nefnd­ar­innar í gær. Þar var lagt til að úrræðið fyrir starf­semi tengdri bygg­ing­ar­fram­kvæmdum og við­haldi hús­næðis verði fram­lengt að fullu út ágúst á næsta ári og frá 1. sept­em­ber muni end­ur­greiðslan mið­ast við 60 pró­sent af því sem ætti ann­ars að fara til rík­is­sjóðs sem virð­is­auka­skatt­ur.

Þá verða end­ur­greiðslur vegna heim­il­is­hjálpar og reglu­legrar umhirðu og vegna frí­stunda­hús­næðis fram­lengdar til 30. júní. End­ur­greiðsla vegna bíla­við­gerða ýmis­konar mun hins vegar falla niður um ára­mót líkt og stefnt var að.

Engin grein­ing á kostn­aði vegna fram­leng­ing­ar­innar var lögð fram sam­hliða nefnd­ar­á­lit­inu en í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kom fram að auknar og útvíkk­aðar end­ur­greiðslur á virð­is­auka­skatti frá byrjun far­ald­urs­ins til árs­loka 2021 muni nema 16,5 millj­örðum króna. Þar sagði einnig að ef úrræðin yrðu fram­lengd í óbreyttri mynd út næsta ár gæti rík­is­sjóður orðið af 12 millj­örðum króna á næsta ári.

Í ljósi þess að end­ur­greiðslur vegna íbúð­ar­hús­næðis hafa verið næstum 80 pró­sent allra end­ur­greiðslna vegna átaks­ins „Allir vinna“ er ljóst að við­bót­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fram­leng­ing­ar­innar mun hlaupa á millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár