Þegar Freud fékk bréf um Lísu prinsessu

Laust fyrir 1930 fékk sál­grein­and­inn frægi Sigmund Freud bréf þar sem hann var beð­inn að gefa ráð til að með­höndla Lísu prinsessu af Batten­berg eða Mountbatten því hún liti svo á að hún væri orðin skila­boða­skjóða fyrir Guð almátt­ugan. Hvað hafði gerst?!

Sigmund Freud um 1930
Sigmund Freud um 1930 Freud var þá hálf­átt­ræður og hafði verið heims­frægur í 30 ár. Hann var braut­ryðj­andi í sál­fræði, um það er engum blöðum að fletta. Mik­il­vægi hans nú liggur fyrst og fremst í því að hann varð einna fyrstur til að vekja athygli á und­ir­með­vit­und­inni og mik­il­vægi þess að bæla ekki niður raun­veru­legar hugs­anir, lang­anir og minn­ingar. Á sínum tíma vakti Freud einna mesta athygli fyrir áhersl­una sem hann lagði á kyn­líf í sál­ar­tetri manns­ins, en þótt sú upp­götvun hans hafi verið löngu tíma­bær hafa hin fínni blæ­brigði kenn­inga hans á kyn­lífs­svið­inu ekki elst vel, væg­ast sagt. En Freud þró­aði sál­grein­ing­una sem lækn­inga­að­ferð gegn kvillum sem sprottnir væru af kyn­ferð­is­legri bæl­ingu, og sú aðferð hefur í sjálfu sér haldið mjög vel gildi sínu. Þar var ein­fald­lega um að ræða sam­tals­með­ferð sem gengur út á að graf­ast fyrir um áföll for­tíð­ar­innar, takast á við þau af hisp­urs­leysi og varpa af sér þunga þeirra.

Klukkan var bara tíu að morgni en Sigmund Freud var byrj­aður að soga ofan í sig reyk­inn úr fjórða vindli dags­ins, og það var sann­ar­lega eng­inn smá­vind­ill. Þeir yrðu að minnsta kosti 20 áður en yfir lyki. Freud fann greini­lega fyrir þykk­ildi í neðri vör­inni þegar hann japl­aði á vindl­inum en neit­aði stað­fast­lega að horfast í augu við að tengsl gætu verið milli reyks­ins og þykk­ild­is­ins.

Samt hafði hann séð menn þar sem einmitt svona þykk­ildi hafði breyst í krabba sem reif að lokum í sig allan kjálk­ann.

En það mundi aldrei koma fyrir hann, hugs­aði Freud. Þetta var bara ein­hver smá bólga, ha? Já, segjum það.

Skilaboð frá Guði

Til að leiða hug­ann frá þessum hugs­unum, þá greip Freud efsta bréfið í bunk­anum sem þjón­ustu­stúlka hafði lagt við morg­un­verð­ar­borð hans. Það var frá Ernst Simmel, ungum kollega hans sem var nýbú­inn að stofna heilsu­hæli fyrir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár