Bresk stjórnvöld vilja selja hlut í Royal Bank of Scotland

Ríkis­sjóður Bretlands kom bankanum til bjargar árið 2008.

Bresk stjórn­völd greindu frá því í gær að þau vilji selja 7,7 prósenta hlut í Royal Bank of Scotland. Seldir verða 925 milljón hlutir í bankanum og er gert ráð fyrir að sölu­andvirðið muni nema allt að 2,6 milljörðum punda sem jafn­gildir tæplega 365 milljörðum króna miðað við núverandi gengi.

Stjórnar­andstaðan í Bretlandi er ósátt við þessi áform, enda er sölu­verðið langt undir því sem það þarf að vera, ef breskir skatt­greiðendur eiga að fá peninginn til baka sem lagður var til bankans fyrir um áratug í fjármála­kreppunni.

Í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC segir John McDowell, sem fer fyrir skugga­ráðuneytið breska Verkamanna­flokksins þegar kemur að fjármálum, að það eigi alls ekki að selja þennan hlut í bankanum, allra síst á verði sem gerir það að verkum að breskir skatt­greiðendur tapa háum fjárhæðum á því að hafa bjargað bankanum.

Efir söluna mun breska ríkið eiga 62,4 prósenta hlut í bankanum.

Rekstur Royal Bank of Scotland hefur gengið illa undan­farinn áratug, en taprekstur hefur verið af rekstri bankans í níu ár af síðustu tíu. Í fyrra varð í fyrsta skipti hagnaður af rekstrinum, frá því breska ríkið koma bankanum til bjargar og þjóðnýtti hann að mestu. Búist er við því að hagnaður verði einnig á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár