Fjarheilari á Hópkaupum útilokar ekki að hún geti læknað krabbamein

María Jónasdóttir selur fjar­heilun á hópkaupa­síðu. Hún segist vera útvalin af guði og geta læknað kvilla úr fjarlægð.

Á sölu­síðunni Hópkaup er auglýst í dag tilboð í svokallaða fjar­heilun. Boðið er upp á tilboð á heilun á 4.800 krónur sem kostar vanalega 8.000 krónur. Viðkomandi heilari heitir María Jóns­dóttir.

Í samtali við Stundina segist María vera útvalin af guði og telur hún sig hafa um 10 prósent af kröftum Jesús Krists, þó að hennar sögn geti hlut­fallið verið hærra þar sem hún sé ávallt að verða betri og betri í starfi sínu. Hún segir að allar uppfinningar mann­kynsins eigi uppruna sinn á himnaríki sem hún lýsir sem nokkur konar framtíðar­útópíu, þó án Facebook. Hún segist ekki útiloka það að hún geti læknað sjúkling af krabba­meini.

Menntuð í „undirvitundarfræðum“

María hefur starfað sem bókari, en er með BA-próf í frönsku. Hún segist vera menntuð í svokölluðu „neuro-linguistic programming“, eða tauga- og tungumála­forritun. „Ég var lengi í námi sem heitir NLP, sem er undir­vitundar­fræði, að hreinsa raun­verulega ótta og kvíða úr fólki. Þetta smám saman leiddi til þess að ég stofnaði aðstöðu niðri á Suður­landsbraut þar sem ég var að taka á móti fólki þar sem það lá á bekk og ég lagði hendurnar á það. Þannig kemur raun­verulega straumur og ljós guðs í gegnum mig, því ég er svo mikið stykki. Ég hef hjálpað á þriðja hundrað manns á Íslandi,“ segir María.

Rann­sóknir hafa hins vegar ekki sýnt fram á gagnsemi tauga- og tungumála­forritunar. Einkenni tauga- og tungumála­forritunar eru hins vegar sögð benda til þess að um sé að ræða skólabókar­dæmi um gervi­vísindi.

María segir að heilanir sínar hafi verið orðnar svo sterkar að hún gat beitt þeim án þess að vera í sama herbergi og sjúklingurinn. „Síðan fann ég það að fyrir­bænir mínar og fjar­heilanir voru orðnar það sterkar að ég þurfti ekki að hafa aðstöðuna. Þannig að ég sagði henni upp. Það er hringt í mig frá Hópkaup og spurt hvort ég vilji ekki endurnýja því ég hafi auglýst hitt fyrir­komulagið í fyrra,“ segir María.

Segist hafa tengingu við almættið

Spurð nánar út í þessa strauma sem hún færir frá sér yfir í sjúklinga segir María að allt efni sé úr straumum. „Allt í heiminum er bylgjur. Húsgögnin okkar titra. Það er pinkulítil titringur. Allt hreyfist. Það er allt bylgja, útvarps­bylgja, sjónvarps­bylgja. Stundum eru gerðar bíómyndir eða teiknimyndir um vélmenni og svona, og þá er það úr járni. Við erum í raun og veru segul­verur; segul­magnaðar verur. Þess vegna höldumst við á jörðinni, vegna þess að inni í möttli jarðar er segull. Þess vegna dettum við ekki af jörðinni út í geim,“ segir María.

María segir að þetta allt hafi svo áhrif  á persónu­leika fólks. „Fólk getur sogið orku og gefið slæma orku. Fólk getur gefið af sér gott. Góð útgeislun og slæm útgeislun. Þetta er allt orka. Manneskja sem kemur inn í herbergi getur gefið af sér góða orku­geisla. Allt er orka og geislar,“ skýrir María.

„Það sem ég er að gera er að tengja mig við almætti, bara biðjast fyrir, og þá gerist það þannig að það kemur til mín orka sem ég beini að manneskjunni. Ef hún væri fyrir framan mig myndi ég setja hendurnar mínar nálægt henni og þá kæmi orku­flæðið í gegnum höfuðið á mér og niður út í gegnum hendurnar. Ég er bara eins og batterís­hleðsla og það er beint frá guði. Þegar ég er ekki á staðnum þá beini ég þessu með fyrir­bænum að menneskjunni.“

Kveðst geta heilað fólk í Kína

Hún segir að nú sé fjar­heilun hennar komin á það stig að hún geti heilað fólk í Kína. „Ég sé hve mikið áhrif fyrir­bænin mín hefur og sé að fjar­heilunin er að virka. Ég get alveg tekið við beiðni frá Kína og fjar­heilað mannsekju þar. Þá stilli ég mér inn á hana. Þá sé ég hana fyrir mér í huganum ef ég er með mynd eða nafn og þá segi ég: „Góði guð, ég bið fyrir þessari manneskju, hún er að fást við þetta.“,“ segir María.

María segir látnir indverskir læknar vinni í gegnum sig ásamt guði. „Það hafa komið í kringum fimmtíu lækna­miðlar í kringum mig úr handan heimum. Ég er með nöfnin þeirra. Hér á landi var staddur lifandi indverskur læknir í jóga­setrinu og ég sýndi honum listann og þá sagðan að þetta væru allt læknar frá Punjab héraði í Norður-Indlandi,“ segir María. Hún segir að einn Íslend­ingur fylgi sér sem hafi ekki verið læknir í lifandi lífi en hafi fengið þá hæfni á himnum.  

Í himnaríki verði Facebook óþarft

Líkt og fyrr segir telur María að allt sem er jarðneskt sé líka til hjá guði. Samkvæmt tilgátu Maríu er framþróun mannkyns undir hand­leiðslu almáttugs afls. „Við erum aldrei að finna neitt upp, uppfinninga­menn eru ekki að finna neitt upp. Þeir eru ekki að búa það til frá grunni. Allt jarðneskt er til í himnaríki. Bara það góða þó. Til dæmis alls konar tölvu­tækni og allt slíkt. Segjum bara síma­samband á milli fólks. Maður tekur upp síma og hringir. Þetta fer allt í gegnum bylgjur, það er búið að opna kapal sem þú sérð ekki með augunum. Að senda ljós guðs er eins og að senda með ljós­leiðara í hús til að horfa á sjón­varpið. Það sem er almættisins, það er verið að yfirfæra það smám saman yfir í mannheima. Þannig að ég nota ljós­orkuna og er að senda hana með ósýni­legum þræði til fólksins.

„Ég nota ljós­orkuna og er að senda hana með ósýni­legum þræði til fólksins.“

Þegar fólk fær ljósu­orkuna fá frumur fólksins tækifæri til að heila sig sjálfar, þá fær það auka­hleðslu, fær auka rafmagn því rafhleðslan er orðin of lítil í líkamanum. Það er ekkert nýtt í alheiminum, því það er til í himnaríki. Þeir sem vinna Nóbels­verðlaun hafa verið að liggja yfir einhverju og þá sér almættið það og sér að þar er einhver sem hægt er að treysta fyrir til að vinna með þá uppgötvun. Á himnum er ekki Facebook því þar geta allir lesið alla,“ segir María.

María segist alltaf að verða kröftugri í heiluninni. „Mér er alltaf hleypt lengra og lengra. Mér er treyst fyrir því. [...] Ég er komin töluvert langt, kannski er ég komin 10 prósent, kannski er ég komin 90 prósent. Ég er þetta milli­stykki, að tengja þessa orku. Ég nota orðið kvillar því ég vil ekki segja að ég sé að lækna það af krabba­meini, en það getur vel verið að það bætist mjög úr því og jafnvel lagist, en ég vil ekki lofa því.“

Trúarlegar bænir eru algengasta form óhefðbundinna lækninga­meðferða. Tekið skal fram að vísindalegar rann­sóknir benda ekki til þess að fjar­heilanir hafi virkni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sala á ósönnuðum meðferðum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár