Krafa ÍAV um kyrrsetningu eigna 105 Miðborgar á borði sýslumanns

Deilur verktaka­fyrirtækis og fjár­festingar­sjóðs um riftun verk­samnings um byggingu húsa á Kirkju­sandi eru nú komnar í þann farveg að verktaka­fyrirtækið hefur óskað kyrr­setningu eigna fjár­festingar­sjóðsins sem heldur utan um húsbygg­inguna.

Teikning af nýbyggingununum á Kirkjusandi.
Teikning af nýbygg­ing­un­unum á Kirkju­sandi. Mynd: Onno/Af vef 105 Miðborgar

Verktaka­fyrirtækið ÍAV hefur lagt fram kyrr­setningar­kröfu til sýslu­manns vegna deilunnar sem staðið hefur yfir um stendur um riftun verk­samnings sem fyrir­tækið var með um byggingu íbúðar- og skrifstofu­húsnæðis á uppbyggingar­reit á Kirkju­sandi.

ÍAV fer fram á kyrr­setningu eigna fjár­festingar­sjóðsins 105 Miðborg slhf., sem er í stýringu Íslands­sjóða, dóttur­félags Íslands­banka, en fjallað er um þetta í útboðs­lýsingu vegna hlutafjár­útboðs Íslands­banka..

Verktaka­fyrirtækið stefndi 105 Miðborg og Íslands­sjóðum til greiðslu tæplega 3,9 milljarða króna snemma í maímánuði. 105 Miðborg lagði fram gagn­stefnu í síðustu viku og fer fram á sömu upphæð úr hendi ÍAV. Einnig hefur félagið óskað eftir því við héraðsdóm að þau atriði í byggingununum sem ÍAV byggði og þarf að laga verði metin. Íslands­sjóðir hafa komið því á framfæri að félagi telji sig ekki eiga að vera aðilar deilunnar fyrir dómstólum, enda snúist hún um verk­samning á milli verktaka­fyrir­tækisins og fjár­festingar­sjóðsins.

Í frétt Morgun­blaðsins í dag segir að kyrr­setningar­krafan frá ÍAV snúist um að tryggja að einhverjar eignir verði eftir félaginu í 105 Miðborg til þess að standa straum af mögulegum skaða­bóta­greiðslum þegar niður­staðan í dóms­málinu liggur fyrir og sömuleiðis að fallist hafi verið á að taka kyrr­setningar­beiðnina fyrir.

105 Miðborg telur kröfu ÍAV illa ígrundaða

Í tölvu­pósti sem 105 Miðborg sendi á íbúa í nýbyggingunum á Kirkju­sandi vegna þessara mála fyrir skemmstu kemur fram að sjóðurinn telji kyrr­setningar­kröfu ÍAV bæði tilefnis­lausa og illa ígrundaða.

Einnig segir þar að ef krafan verði samþykkt komi það til með að hafa áhrif á getu félagsins til þess að halda áfram með lagfæringar á íbúðum sem nú standa yfir og aðrar lagfæringar sem eru fyrir­liggjandi.

105 Miðborg rifti verk­samningi við ÍAV þann 19. febrúar á þessu ári og réði aðra verktaka inn í staðinn. Ástæður fyrir riftuninni voru sagðar tafir á framkvæmdum og gallar í húsunum sem þá voru risin, sem ÍAV hefði neitað að laga nema gegn frekari greiðslu.

Þegar samningum var rift var búið að byggja tvö fjölbýlishús og steypa upp eitt skrifstofu­húsnæði.

Í kjölfarið á því að riftun verksamningins rataði í fréttir í upphafi mars­mánaðar sendi ÍAV frá sér yfir­lýsingu, þar sem fyrir­tækið sagðist ekki hafa fengið greitt vegna vinnu við verkið frá því í lok nóvember 2020 og því boðað stöðvun þess í janúar­mánuði.

ÍAV sagði að þær ástæður sem nefndar hefðu verið fyrir riftuninni væru að mati fyrir­tækisins fjarri því að vera lögmætar og að tjón ÍAV vegna aðgerða 105 Miðborgar og Íslands­sjóða væri verulegt, bæði vegna verk­kostnaðar sem ekki hefði fengist greiddur og orðspors­missis.

Í yfir­lýsingunni sagði sömuleiðis að ÍAV stæði í þeim skilningi að 105 Miðborg sem verkkaupi ætti að greiða fyrir hluta verksins sem voru utan samnings um byggingu húsanna þriggja á Kirkju­sandi, en einnig að taka ætti tillit til utan­aðkomandi þátta, einkum kórónu­veiru­faraldursins, við ákvörðun verktíma og viðbótar­kostnaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár