ÍAV stefna og setja fram 3,8 milljarða kröfur vegna deilu á Kirkjusandsreit

Íslenskir aðal­verktakar eru búnir að stefna Íslands­sjóðum og félaginu 105 Miðborg til greiðslu 3,8 milljarða króna vegna deilu um verk­samning á Kirkju­sandsreit. Verktaka­fyrirtækið missti verkið í febrúar­mánuði.

Deilan snýst um verksamning á milli ÍAV og 105 Miðborgar um fyrstu þrjú húsin sem eru þegar risin á reitnum í Laugarnesi. Hér má sjá tölvuteikningu af því hvernig áformað er að svæðið líti út í framtíðinni.
Deilan snýst um verk­samn­ing á milli ÍAV og 105 Mið­borgar um fyrstu þrjú húsin sem eru þegar risin á reitnum í Laug­ar­nesi. Hér má sjá tölvu­teikn­ingu af því hvernig áformað er að svæðið líti út í fram­tíð­inni. Mynd: Onno/Af vef 105 Miðborgar

Íslenskir aðal­verktakar (ÍAV) hafa stefnt bæði 105 Miðborg slhf. og Íslands­sjóðum hf. vegna deilna um framkvæmdir á Kirkju­sandi í Reykjavík. Fer verktaka­fyrirtækið, sem fékk reisu­passann sem aðal­verktaki í framkvæmdunum í febrúar, fram á að fá greidda 3,8 milljarða króna. Stefna ÍAV var lögð fram 3. maí.

Þetta kemur fram í ársfjórðungs­reikningi Íslands­banka, í kafla þar sem fjallað er um atburði sem gætu snert afkomu samstæðu bankans en áttu sér stað eftir fyrstu þrjá mánuði ársins. Íslands­sjóðir eru dóttur­félag Íslands­banka og 105 Miðborg er fjár­festinga­félag sem Íslands­sjóðir stjórna.

Fram kemur í umfjöllun bankans um málið að 105 Miðborg hafi áður hafnað kröfum ÍAV og að félagið sé að undirbúa gagn­stefnu þessa dagana. Íslands­sjóðir líti hins vegar svo á að félagið sé ekki beinn þátt­takandi í deilunni, en í umfjöllun Íslands­banka segir að þar sem einungis tveir dagar hafi liðið frá því að stefnan barst og þar til þriggja mánaða uppgjör bankans var birt í gær hafi ekki gefist til að gaumgæfa þær kröfur sem settar eru fram í stefnu ÍAV.

ÍAV telur riftunina ekki standast lög

Í desember 2017 samdi félagið 105 Miðborg við ÍAV um að vera aðal­verktaki í fyrsta áfanga þeirrar miklu uppbyggingar sem er hafin á svokölluðum Kirkju­sandsreit í Laugarnesi, en þar hafa nú þegar tvö fjölbýlishús verið tekin í notkun og stórt og mikið atvinnu­húsnæði er sömuleiðis risið, en óklárað.

105 Miðborg rifti samningnum við ÍAV þann 19. febrúar og réði aðra verktaka inn í staðinn. Ástæður fyrir riftingunni voru sagðar tafir á framkvæmdum og gallar í húsunum sem voru risin, sem ÍAV hefði neitað að laga nema gegn frekari greiðslu.

Í kjölfarið á því að riftun verksamningins rataði í fréttir í upphafi mars­mánaðar sendi ÍAV frá sér yfir­lýsingu, þar sem fyrir­tækið sagðist ekki hafa fengið greitt vegna vinnu við verkið frá því í lok nóvember 2020 og því boðað stöðvun þess í janúar síðastliðnum.

ÍAV sagði að þær ástæður sem nefndar hefðu verið fyrir riftuninni væru að mati fyrir­tækisins fjarri því að vera lögmætar og að tjón ÍAV vegna aðgerða 105 Miðborgar og Íslands­sjóða væri verulegt, bæði vegna verk­kostnaðar sem ekki hefði fengist greiddur og orðspors­missis.

Í yfir­lýsingu félagsins sagði að ÍAV stæði í þeim skilningi að verkkaupi ætti að greiða fyrir hluta verksins sem voru utan samnings um byggingu húsanna þriggja á Kirkju­sandi, en einnig að taka ætti tillit til utan­aðkomandi þátta, einkum kórónu­veiru­faraldursins, við ákvörðun verktíma og viðbótar­kostnaðar.

Nú er ljóst að ÍAV ætlar að reyna að sækja 3,8 milljarða á 105 Miðborg og Íslands­sjóði – og Íslands­banki fylgist með og bíður átekta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár