Forstjóri Salmar: Laxeldið á Íslandi er líka sjálfbært

For­stjóri stærsta hags­muna­að­il­ans í íslensku lax­eldi, Salmar AS, segir að aflandseldi á laxi sé bara við­bót við strand­eldi eins og Salmar stundar á Íslandi.

Strandeldi áfram í aðalhlutverki
Strand­eldi áfram í aðal­hlut­verki Trond Williksen segir að strand­eldi á eld­is­laxi muni verða aðal­fram­leiðslu­að­ferðin á eld­is­laxi í kom­andi fram­tíð og að aflandseldi sé bara við­bót við þá fram­leiðslu. Mynd: Laxeldi

Notkun á úthaf­seld­iskvíum í lax­eldi er bara við­bót við lax­eldi í fjörð­unum í Noregi og Íslandi, segir Trond Williksen, for­stjóri Salmar AS, stærsta hags­muna­að­il­ans í íslensku lax­eldi í við­tali við Stundina. „Fram­leiðsla á laxi við strendur landa er ein­hver umhverf­is­væn­asta aðferð sem til er til að fram­leiða dýra­prótein. […] Að okkar mati er lax­eldi við strendur landa og í fjörðum sjálf­bært svo lengi sem það er innan þess ramma sem það er í dag. Hins vegar er mögu­leik­inn á vexti nálægt strönd­inni tak­mark­aður og við viljum hefja úthaf­seldi til að þróa lax­eldið lengra,“ segir Trond, sem svar­aði spurn­ingum blaðs­ins skrif­lega í tölvu­pósti.

Salmar á 34 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi á Bíldudal í gegnum norska hluta­fé­lagið Arnarlax AS. Arnarlax er langstærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands eftir sam­ein­ingu við Fjarða­lax í fyrra.

Úthafseldi sjálfbærara

Eins og Stundin hefur greint frá tekur Salmar AS í notkun úthaf­seld­is­kví síðar í mán­uð­inum, sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár