Verjast falsfréttum með nýju forriti

Stofnandi eBay og fjár­festirinn George Soros hafa fjár­magnað þróun á sjálf­virku staðreyndar­vaktar­forriti, en breskir miðlar munu fá að nota prufu­útgáfu þess í haust.

George Soros, annar fjármagnari forritsins.
George Soros, annar fjár­magn­ari for­rits­ins. Mynd: EPA

Fjár­festirinn George Soros og stofnandi eBay, Pierre Omidyar, hafa látið þróa sjálf­virkt forrit sem sann­reynir stað­hæfingar í enskum fjöl­miðlum. Prufu­útgáfa forritsins verður gefin út í október, en forritið er hluti af alheims­átaki gegn fals­fréttum. Þetta kemur fram á vef Guardian í gær.

Í fréttinni segir að forritið sé í þróun hjá ensku Full Fact- samtökunum í samstarfi við hagstofu Bretlands, en Soros og Omidyar hafa styrkt verkefnið með fjár­framlögum að andvirði um 500.000 Bandaríkja­dala. Útgáfan sem gefin verður út í haust hefur fengið nafnið „Kjaftæðis­leitir“ (Bullshit Detector) og byggir á þúsundum hand­virkra staðreynda­könnunum, en seinni útgáfur munu nálgast opinberar tölur með sjálf­virkum hætti.

Forritið vinnur úr ræðum enskra stjórn­málamanna með því að samrýma þær við gagna­grunn sem inni­heldur fréttir, útsendingar frá þinginu og pistla sem birtir hafa verið í frétta­miðlum. Einnig er unnið að því að bjóða notendum Twitter og Facebook upp á staðreyndar­vakt á frétta­flæði þeirra, en samkvæmt Guardian kemur meirihluti fals­frétta þaðan.

„Þetta er svipað og að byggja upp ónæmis­kerfi,“ sagði Mevan Babakar, verkefnis­stjóri hjá Full Fact, og vildi meina að heiminn vantaði tól til þess að verjast auknu magni rangra upplýsinga.

Þróun hugbúnaðarins hjá Full Fact er hugsuð sem alþjóðlegt svar gegn fals­fréttum (fake news), en ensku samtökin eru í samstarfi við staðreynda­vaktirnar Chequeado frá Argentínu og Africa Check, sem starfar meðal annars í Nígeríu og Suður-Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár