Svandís rakti breytingar á gjaldtöku á laxeldi í Noregi og Færeyjum fyrir ríkisstjórn

Stóru laxeldis­fyrirtækin þurfa að mati stjórn­valda í Noregi að koma með meira framlag við að nýta sameiginleg hafsvæði norsku þjóðarinnar. Matvæla­ráðherra kynnti stöðu á endur­skoðun laga­umhverfisins hér í saman­burði við nágranna­lönd.

Heildarendurskoðun á lagaumhverfi sjókvíaeldis og annars eldis stendur yfir.
Heild­ar­end­ur­skoðun á lagaum­hverfi sjó­kvía­eldis og ann­ars eldis stendur yfir. Mynd: Norska hafrannsóknarstofnunin

Væntingar standa til að niður­staða fjölþættrar vinnu á vegum matvæla­ráðuneytisins „verði góður grunnur fyrir komandi heildar­endurskoðun á reglu­verki, umgjörð, gjaldtöku og framkvæmd í fiskeldi“ líkt og fram kemur í stefnu­yfirlýsingu ríkis­stjórnarinnar. Um þetta er ítarlega fjallað í minnis­blaði sem Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra kynnti á fundi ríkis­stjórnarinnar á föstudag og Kjarninn fékk afhent.

Vinnan sem ráðuneyti Svandísar hefur hleypt af stokkunum felst m.a. í ítarlegri úttekt ráðgjafa­fyrir­tækisins Boston Consulting Group á stöðu lagar­eldis á Íslandi en lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi. Í skýrslunni, sem væntanleg er í lok mánaðarins, verður lagt mat á áskoranir og tækifæri í eldinu auk þess sem fjallað verður um mótvægis­aðgerðir vegna umhverfis­þátta.

Þá vinnur Ríkis­endurskoðun vinnur að úttekt á stjórn­sýslu mála­flokksins í ráðuneytinu og undir­stofnunum þess en niður­stöður þeirrar vinnu munu væntanlega einnig liggja fyrir undir lok október.

Jafnframt er starfs­hópur um smit­varnir og sjúkdóma í fiskeldi að störfum og gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki undir lok árs.

Starfshópur vegna stroks

Í fjórða og síðasta lagi mun matvæla­ráðherra skipa starfs­hóps vegna frétta um strok á eldislaxi í Arnar­firði. Í hópnum verða fulltrúar ráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsókna­stofnun og Matvæla­stofnun. Hlutverk hópsins verður að fara yfir þær reglur sem um málefnið gilda hérlendis, skoða þá ferla og framkvæmd sem eru til staðar og gera tillögur að útbótum.

Í minnis­blaði Svandísar er minnt á að í stefnu­yfirlýsingu ríkis­stjórnarinnar segi að móta eigi heild­stæða stefnu um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu skuli leggja áherslu á tækifæri til atvinnu­sköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grund­velli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxa­stofna.

Ráðherrann fer svo í minnis­blaðinu yfir stöðu mála­flokksins í Noregi og Færeyjum en þar hafa verið kynntar tillögur um breytingar á gjaldtöku í fiskeldi.

Nýr auðlindarentuskattur í Noregi

Á dögunum kom ríkis­stjórn Noregs með tillögur um nýjan auðlinda­skatt í sjókvíaeldi, vindorku á landi og vatnsafli. Frumvarp til fjárlaga í Noregi var kynnt í síðustu viku en ástæða fyrir kynningunni á tillögunum um breytingar á auðlindarentu­skattinum áður en frum­varpið var tilkynnt hefur verið óljós í norskum fjöl­miðlum. Hefur því m.a. verið slegið fram að upplýsingar hafi lekið og því hafi verið nauðsynlegt að koma út viðkvæmum upplýsingum sem gætu haft áhrif á hlutabréfa­markaðinn. Tilkynning stjórn­valda var með yfir­skriftinni: „Sann­gjarnari skipting hagnaðar vegna nýtingar náttúru­auðlinda“.

Helstu breytingarnar eru eftirfarandi:

Auðlindarentu­skattur upp á 40 prósent, sem er 62 prósent jaðar­skattur ef tekið er tekið er tillit til 22 prósenta tekju­skatts. Þar sem tekju­skattur er reiknaður fyrst er auðlindarentu­skatturinn í raun 51,3 prósent, er bent á í minnis­blaðinu.

Þar segir ennfremur að auðlinda­skatturinn sé í raun áætlaður viðbótar­tekju­skattur þar sem skatta­andlagið (auðlindarentan) er áætluð stærð. Virðis­auki í vinnslu er undan­skilinn. Notast er við heims­markaðsverð á laxi þegar tekjur eru ætlaðar og fjármagns­kostnaðurinn undan­skilinn. „Auðlinda­skatturinn er því ekki hreinn meðaltals­skattur eins og útreikningur veiði­gjalda er hér á landi, eða framleiðslu­gjaldið í sjókvíaeldi sem er magn­bundinn veltu­skattur,“ stendur í minnis­blaði ráðherra.

Litlu fyrirtækin greiða minna

Gert er ráð fyrir að draga megi frá hagnaði sem samsvarar 4-5 þúsund tonna fram­leiðslu áður en kemur að skatt­lagningu en það þýðir að þau fyrirtæki sem eru með fram­leiðslu undir 5 þúsund tonnum eru að mestu undan­þegin skattinum. Í máli fjármála­ráðherra Noregs kom fram að 70 prósent af öllum fyrir­tækjunum í sjókvíaeldi yrðu þar með undan­þegin skattinum. 2/3 af áætluðum auðlinda­skatti muni lenda á fimm stærstu fyrir­tækjunum og lagði fjármála­ráðherrann mikla áherslu á að stóru fyrir­tækin þurfi að koma með meira framlag við að nýta sameiginleg hafsvæði norsku þjóðarinnar.

Tillagan gerir ráð fyrir að skila sem svarar um 50 milljörðum ISK árlega í ríkissjóð, en þeirri fjárhæð verður deilt jafnt á milli ríkis og sveitar­félaga/fylkja.

Ofan­greind tillaga er ekki ný af nálinni í Noregi. Árið 2019 kom út skýrsla nefndar fjármála­ráðuneytisins þar sem að meirihluti nefndar­manna lagði til að settur yrði 40 prósent auðlindarentu­skattur. Sú tillaga hlaut ekki brautar­gengi hjá þáverandi ríkis­stjórn og var þess í staðinn sett á framleiðslu­gjald upp á 0,40 norskar krónu á hvert tonn, um 5-6 íslenskar krónur á hvert kíló.

„Til saman­burðar má reikna með að framleiðslu­gjaldið á Íslandi verði um 45-55 kr. per. kg. þegar sólarlags­ákvæði rennur út 2026 að teknu tilliti til breytinga sem kynntar hafa verið í tekju­bandormi fjárlaga,“ segir í minnis­blaði Svandísar.

Breytingar á framleiðslugjaldi í Færeyjum

Framleiðslu­gjaldið (veltu­skattur) í sjókvíaeldi á Íslandi er byggt á aðferða­fræði við útreikning sem nú er í gildi í Færeyjum, þ.e. þrjú mismun­andi gjald­hlutföll þar sem gjald­stofninn er heims­markaðsverð á laxi.

Nýverið tilkynntu færeysk stjórn­völd í drögum að fjárlögum um breytingar á gjaldinu. Megin­breytingarnar eru þær að gjald­hlut­föllunum fjölgar úr þremur í fimm, viðmiðunar­verð hækkar og tekið er tillit til framleiðslu­kostnaðar. Framleiðslu­kostnaður byggist á meðaltals­kostnaði fyrir­tækja í sjókvíaeldi og verður breyti­legur milli ára. Reiknað er með að breytingin skili um 1,4 milljarði íslenskra króna og að framleiðslu­gjaldið skili í heild um 6,3 milljörðum ÍSK á næsta ári.

Fyrir hverjar 5 danskar krónur (um 95 íslenskar) sem heims­markaðsverð hækkar, hækkar hlut­fallið um 2,5 prósent. Ef heims­markaðsverð er undir framleiðslu­kostnaði er gjaldið um 0,4 kr. á kíló. Gjaldið fer svo stig­vaxandi eftir því sem meiri munur er á milli framleiðslu­kostnaðar og heims­markaðs­verðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár