„Öll börn eru hugrökk“

Evie Quinn vinnur á sérhæfðum barna­spítala í London, höfuðborg Bretlands. Þegar þetta er ritað hafa 42 þúsund staðfest smit verið greind í Bretlandi og tala látinna er á fimmta þúsund.

Evie Quinn vinnur á sérhæfðum barna­spítala í London, höfuðborg Bretlands. Þegar þetta er ritað hafa 42 þúsund staðfest smit verið greind í Bretlandi og tala látinna er á fimmta þúsund. Starf Evie hefur verið sérstak­lega krefjandi síðustu tvær vikurnar, því margir aðrir spítalar í London hafa verið að loka barna­deildunum sínum og barna­gjör­gæslunni til að sinna alvarlega veikum full­orðnum COVID-19 sjúklingum í staðinn. Þetta þýðir að þau börn sem yrðu lögð inn á þessa spítala undir venju­legum kringum­stæðum streyma núna á spítalann þar sem Evie hlynnir að þeim.

Hverjar eru helstu áskoranirnar sem fylgja starfi þínu þessa dagana?

„Undir venju­legum kringum­stæðum sér deildin mín um börn með erfiða sjúkdóma sem krefjast sérhæfingar. Nú er búið að færa þessi börn á aðrar deildir spítalans og deildinni minni var breytt í almenna deild fyrir öll börnin sem streyma að frá hinum spítölunum. Ég útskrifaðist sem hjúkrunar­fræðingur fyrir nokkrum mánuðum síðan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í framlínunni

FréttirFólkið í framlínunni

„Ég fer að gráta í hvert sinn“

Amy Mitchell vinnur sem hjúkrunar­fræðingur í Victoria British Columbia í Kanada. Spítalinn sem hún vinnur á, The Royal Jubilee Hospital, er annar af tveimur á Vancouver Island sem sinnir COVID-19 sjúklingum. Amy vinnur á hjarta­deildinni, þar sem ástand sjúklinga er nógu stöðugt til að þeir þurfi ekki að vera á gjörgæslu, en ekki nógu stöðugt til að bíða heima eftir þvi að komast í aðgerð. Eftir að COVID-19 faraldurinn hófst sér deildin núna um alla sem eru með staðfest og grunað smit og þurfa að vera undir hjarta­eftirliti. Þegar þetta er ritað hafa 38 einstak­lingar látist úr nýju kóróna­veirunni á svæðinu.
FréttirFólkið í framlínunni

Dagbók hjúkrunar­fræðings á COVID-19 deildinni

Ólíkt stríðum og náttúru­hamförum, sem oftast eru stað­bundnar hörmungar í afmörkuðum heims­hlutum, hefur COVID-19 sameinað mannkynið sem glímir alls staðar við sama sjúk­dóminn og afleið­ing­arnar sem hann hefur á samfélagið. Lýsingar heilbrigðis­starfsfólks um allan heim eru þær sömu, frásagnir af ringul­reið, skorti á hlífðar­búnaði og fárveikum sjúklingum en líka af náunga­kærleik, dugnaði og samstöðu.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár