Dagbók hjúkrunarfræðings á COVID-19 deildinni

Ólíkt stríðum og náttúru­hamförum, sem oftast eru stað­bundnar hörmungar í afmörkuðum heims­hlutum, hefur COVID-19 sameinað mannkynið sem glímir alls staðar við sama sjúk­dóminn og afleið­ing­arnar sem hann hefur á samfélagið. Lýsingar heilbrigðis­starfsfólks um allan heim eru þær sömu, frásagnir af ringul­reið, skorti á hlífðar­búnaði og fárveikum sjúklingum en líka af náunga­kærleik, dugnaði og samstöðu.

Hjúkrunar­fræðingur á COVID-19 deildinni á háskóla­sjúkra­húsinu í Wales í Bretlandi ákvað að halda nákvæma dagbók af fyrstu tveimur vöktunum sínum í framvarða­sveitinni gegn kóróna­veirunni. Rétt er að vara við sumum lýsingunum í þessum einstaka vitnis­burði, sem hún ákvað að deila með lesendum Stundarinnar.

Ég er menntaður hjúkrunar­fræðingur og hef unnið hjá NHS, bresku heilbrigðis­þjónustunni, í 15 ár. Fyrst um sinn vann ég í bæklunar­lækningum, en svo uppgötvaði ég að ástríða mín felst í því að gera að sárum. Ég fór út í það og er sérhæfður sára­hjúkrunar­fræðingur fyrir allt Cardiff og Wales-svæðið í dag. Þetta reyndist líka fjölskyldu­vænlegra starf, því vaktirnar eru frá kl. 8 til kl. 16 og frí um helgar. Ég á 20 mánaða gamlan son og eiginmann sem vinnur sem arkitekt. Hann vinnur reyndar heima um þessar mundir og verkefnin eru fá sökum ástandsins, svo hann sér alfarið um son okkar.  

Skipað í framvarðarsveitina

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í framlínunni

FréttirFólkið í framlínunni

„Ég fer að gráta í hvert sinn“

Amy Mitchell vinnur sem hjúkrunar­fræðingur í Victoria British Columbia í Kanada. Spítalinn sem hún vinnur á, The Royal Jubilee Hospital, er annar af tveimur á Vancouver Island sem sinnir COVID-19 sjúklingum. Amy vinnur á hjarta­deildinni, þar sem ástand sjúklinga er nógu stöðugt til að þeir þurfi ekki að vera á gjörgæslu, en ekki nógu stöðugt til að bíða heima eftir þvi að komast í aðgerð. Eftir að COVID-19 faraldurinn hófst sér deildin núna um alla sem eru með staðfest og grunað smit og þurfa að vera undir hjarta­eftirliti. Þegar þetta er ritað hafa 38 einstak­lingar látist úr nýju kóróna­veirunni á svæðinu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár