Innrás og landhernaður er „eina leiðin“

Eina leiðin til afvopna her Norður-Kóreu, og koma í veg fyrir mögu­leikann á notkun kjarnorku­vopna, er að beita land­hernaði, segja yfirmenn í Banda­ríkjaher.

Yfirmaður í Bandaríkjaher, aðdmírállinn Michael Dumont, segir í bréfi til þingmanns Demókrata, Ted Lieu, að eina leiðin til að afvopna her Norður-Kóreu, og koma í veg fyrir mögu­leikann á því að kjarnorku­vopnum sé beitt gegn Banda­ríkjunum og bandalags­þjóðum, sé innrás og land­hernaður.

Í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC segir Dumont telji erfitt að meta hver yrðu áhrifin á fyrstu stigum innrásar, en að hættan á kjarnorku­árás Norður-Kóreu séu umtals­verð, og þá sé einnig erfitt að meta hvernig hvernig myndi takast að gera neðan­jarðarvirki Norður-Kóreu óvirkt, en það er umfangs­mikið og mikil­vægur hluti af vörnum hersins.

Í bréfinu fer Dumont ekki leynt með það, að hann styðji efnahagslegar og pólitískar þvinganir gagnvart Norður-Kóreu, áður en gripið er til hernaðar­aðgerða. Greinilegt er að mikil óvissa er um hvernig stríð gæti þróast komi til þess að barist verði í land­hernaði á Kóreu­skaga. Hinn óútreiknanlegi leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, er einnig talinn líklegur til að bregðast hratt við árás á landið og þá með fífl­dirfsku og jafnvel kjarnorku­árás.

Í yfir­lýsingu frá Lieu segir að hann að þessar upplýsingar frá yfirmanni í hernum séu verulega varhuga­verðar og að þær sýni að gríðarlegt manntjón geti orðið á örfáum dögum, og þar geti mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir manna farist.

Þá segir hann það líka liggja fyrir, að hernaðar­íhlutun á Kóreu­skaga sé ekki góð lausn, og gagnrýnir hann Donald Trump Bandaríkja­forseta fyrir að grafa undan friðsælum lausnum á spennunni á Kóreu­skaga, og auka hættuna á því að stríð brjótist út með skelfi­legum afleiðingum.

Íbúar í Norður-Kóreu eru 25 milljónir en í Suður-Kóreu 51 milljón. Á Kóreu­skaga eru því um 76 milljónir íbúa. Höfuðborg Suður-Kóreu, Seúl, er aðeins í 35 kílómetra fjarlægð frá landamæru Norður-Kóreu, en þar er þéttasta og fjölmennasta borgar­samfélagið á Kóreu­skaga, með 10 milljónir íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár