Það verður að gera miklu meira til að auka fjárfestingu

Christine Lagarde, nýr banka­stjóri Seðla­banka Evrópu, segir að miklar áskoranir séu framundan í Evrópu.

Christine Lagarde, banka­stjóri Seðla­banka Evrópu, segir að gera þurfi miklu meira til að örva fjár­festingu í Evrópu. Alltof lítil fjár­festing, í svo til öllum geirum hagkerfa álfunnar, sé það sem telja megi sem helstu ógnina fyrir efnahagslíf Evrópu­landa.

Verðbólgu­markmið Seðla­banka Evrópu er 2 prósent, en verðbólga mælist undir 1 prósent í Evrópu. Lagarde sagði í sinni fyrstu ræðu sem banka­stjóri Seðla­banka Evrópu, síðastliðinn föstudag, að fjár­festing þyrfti að aukast ef ekki ætti illa að fara.

Hvatti hún ríkis­stjórnir Evrópu­landa til að auka fjár­festingu og efla innviði, til að vinna gegn hægagangi í álfunni. Í umfjöllun FT segir meðal annars, að Lagarde hafi sagt nauðsynlegt að auka fjár­festingu í rann­sóknum, þróun og menntun, auk þess sem nýsköpun og tækni væri ekki nægilega mikið inn á radar fjárfesta.

Atvinnu­leysi í Evrópu hefur farið lækkandi undan­farin misseri, en það mælist nú 6,3 prósent. Mest fór það upp undir 12 prósent árið 2013. Þrátt fyrir að staða á vinnu­markaði hafi batnað, þá hafa áhyggjur af ónægri fjár­festingu og minni umsvifum í ýmsum geirum, valdið vaxandi áhyggjum. Lagarde sagði að aukin fjár­festing, ekki síst hins opinbera, væri rétta svarið við þeim aðstæðum sem uppi væru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár