Lágskattalönd í Evrópu samþykkja alþjóðlegan fyrirtækjaskatt

Alþjóð­legur 15 prósenta lágmarks­skattur á fyrirtæki er nú orðin skrefi nær því að verða að veruleika eftir að þau aðildar­ríki Evrópu­sambandsins sem voru gegn innleiðingu hans tilkynntu í vikunni að þau myndu samþykkja hana.

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands
Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands Mynd: EPA

Ríkis­stjórnir Ungverja­lands, Írlands og Eistlands hafa allar tilkynnt að þær muni samþykkja innleiðingu 15 prósenta alþjóð­legs lágmarks­skatts á stór­fyrirtæki, verði hann að veruleika. Með þessum yfir­lýsingum er líklegt að Evrópu­sambandið samþykki innleiðinguna í heild sinni, þar sem löndin þrjú voru helstu andstæðingar slíkrar skatt­lagningar. Þetta kemur fram í frétt New York Times frá því fyrr í dag.

Fjármála­ráðherra Írlands, Pascal Donohue, tilkynnti í gær að ríkis­stjórnin myndi skrifa undir stuðnings­yfirlýsingu frá OECD um skatt­lagninguna, en fyrirtækja­skattur þar í landi nemur aðeins 12,5 prósentum þessa stundina. Samkvæmt Donohue er fyrir­hugaða skatt­lagningin mynd sanngjörn mála­miðlun á hugmyndinni, en einungis fyrirtæki með tekjur sem nema yfir 750 milljörðum evra þurfa að greiða skattinn.

Mathias Cormann, aðal­ritari OECD, tilkynnti svo á Twitter-síðunni sinni í gær að Eistland, sem er einnig lágskatta­land, hafi einnig skrifað undir yfir­lýsinguna. Samkvæmt New York Times undir­ritaði eistneska ríkis­stjórnin eftir að hafa fullvissað sig um að skatt­lagningin myndi ekki koma sér illa fyrir sprota­fyrirtæki í landinu.

Fyrr í dag tilkynnti svo Viktor Orbán, forsætis­ráðherra Ungverja­lands, að ríkis­stjórnin þar myndi einnig samþykkja skatt­lagninguna, að því gefnu að þeir fengju tíu ár til að innleiða skattinn í stað fimm ára. Núgildandi fyrirtækja­skattur þar í landi nemur einungis níu prósentum.

Búist er við því að samningur um skatt­lagninguna verði full­gerður í næstu viku í Washington, þegar fjármála­ráðherrar G20-ríkjanna koma saman. Samkvæmt New York Times er svo líklegt að samningurinn verði undir­ritaður á ráðstefnu ríkjanna í Róm í lok mánaðarins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár