Trump sagður boða „tæra þjóðernishyggju“

Ræða Donalds Trumps fær ekki háa einkunn hjá mörgum af stærstu fjöl­miðlum Banda­ríkjanna. Í New York Times er ræða hans þegar hann tók við sem forseti, sögðu hafa verið myrk, köld og ógnvekjandi.

Don­ald J. Trump, sem tók við embætti forseta Banda­ríkj­anna i gær, númer 45 í röðinni, lét strax til sín taka eftir að hann var orðinn forseti.

Á vef breska ríkis­útvarpsins BBC var hann sagður vera tilbúinn með tilskipanir sem draga til baka mörg af stefnu­málum Baracks Obama, þar á meðal mál sem tengjast umhverfis­málum og barátt­unni gegn loftslags­breytingum. Hefur vefsíða Hvíta hússins, sem hélt utan um gögn er vörðuðu vinnu yfirvalda þegar kom að loftslags­breytingum, verið fjarlægð.

Trump hefur sérstak­lega gefið til kynna að hann ætli að draga Obamacare, heilbrigðis­stefnuna sem Barack Obama barðist sem mest fyrir á sínum valdatíma, til baka en um 20 milljónir Bandaríkja­menn hafa fengið heilbrigðis­tryggingu í gegnum þá stefnu. Obama hefur sérstak­lega varað við þessu og sagt að stjórn­völd verði að tryggja að það komi eitthvað annað sambærilegt í staðinn.

Fastlega er búist við því að Trump kynni fljótt stefnu sína í efnahags­málum, meðal annars sem snúa að viðskipta­samningum við Mexíkó og fleiri ríki.

Í ræðu sinni í gær lagði hann áherslu á að Banda­ríkin þyrftu að ná vopnum sínum aftur og í þetta skiptið yrði enginn „skilinn útundan“. Þá boðaði hann sérstakan dag sem tileinkaður verður föðurlandsást og talaði fyrir því að Bandaríkja­menn þyrftu að vita alla daga að Banda­ríkinu „væru frábær“.

Í fjöl­miðlum hefur Trump verið gagn­rýndur fyrir ræðu sína, en einnig fengið mikið hrós frá stuðnings­mönnum sínum á samfélags­miðlum. Í New York Times var hann sagður hafa boðað „tæra þjóðernis­hyggju“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár