Evrusvæðið heldur áfram að rétta úr kútnum

Um 500 milljóna efnahags­svæði evru­landanna hefur sýnt batamerki linnulaust í fjögur ár. Meira þarf þó til að skapa lang­varandi stöðug­leika fyrir uppbyggingu, segir forseti stjórnar Seðla­banka Evrópu.

Mario Draghi, bankastjóri seðlabanka Evrópu
Mario Draghi, banka­stjóri seðla­banka Evrópu Mynd: EPA

Eftir margra ára hægagang, í kjölfar fjármála­kreppunnar á árunum 2007 til 2009, hafa hagtölur á Evru­svæðinu batnað jafnt og þétt, en gögn sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til sýna að vöxtur í hagkerfum heldur áfram að vera stöðugur.

Samkvæmt skoðana­könnun IHS Markit, þar sem innkaupa­stjórar fyrir­tækja eru spurðir út í horfum í rekstri, eru efnahags­horfur nokkuð góðar fyrir næstu mánuði, og tæplega eitt prósent hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi þessa árs virðist vera í kortunum.

Það kann að hljóma lítið fyrir einhverjum, en er staðfesti á því yfir 40 mánaða hagvaxtar­skeiði innan evru­svæðisins. Greinandi IHS segir í viðtali við BBC að þetta séu góðar fréttir fyrir svæðið, en vöxturinn er drifinn áfram af vaxandi efnahags­umsvifum í Þýska­landi og Frakk­landi, stærstu iðnríkjum evru­svæðisins.

Í febrúar síðastliðnum greindi FT frá því í umfjöllun sinni að efnahags­batinn í Evrópu - 500 milljóna íbúa markaðs­svæði - væri í reynd „hljóðlát bylting“, því óhætt væri að segja að hann hefði ekki stolið fyrir­sögnum. Á þeim tíma hafði mælst hagvöxtur á evru­svæð­inu í fjórtán árs­fjórð­unga í röð, atvinnu­leysi haldið áfram að minnka og farið undir 10 prósent, og við­horf gagn­vart hag­kerf­inu ekki verið jákvæð­ara í sex ár.

Eins og mál horfa við nú, virðist vera framhald á þessari þróun og efnahags­batinn stað­festur í 15 ársfjórðunga í röð. Seðla­banki Evrópu hyggst halda áfram örvunar­aðgerðum sínum, en bankinn hefur keypt skulda­bréf á markaði fyrir um 60 milljarða evra í hverjum mánuði, með það að markmiði að örva hagvöxt, undan­farin þrjú ár.

Þrátt fyrir það hefur Mario Draghi, forseti stjórnar Seðla­banka Evrópu, sagt að ekki hafi verið nóg gert enn til að örva hagvöxt á svæðinu, og mikilvægt sé að sýna þolinmæði til að skapa farveg fyrir lang­varandi stöðug­leika og uppbyggingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár