Kópavogsbær skoðar flötu fjallahjólabrautina betur eftir holskeflu athugasemda

Kópa­vogsbær hefur boðað að fjallahjóla­braut við Austurkór í Kópavogi verði tekin til nánari skoðunar, eftir fjölda athugasemda frá svekktum íbúum þess efnis að brautin gagnist lítið við fjalla­hjólreiðar.

Fjallahjólabrautin við Austurkór var eitt verkefna sem valið var til framkvæmda af íbúum í íbúðalýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur í fyrra.
Fjalla­hjóla­brautin við Aust­ur­kór var eitt verk­efna sem valið var til fram­kvæmda af íbúum í íbúða­lýð­ræð­is­verk­efn­inu Okkar Kópa­vogur í fyrra. Mynd: Kópavogsbær

Kópa­vogsbær segist ætla að taka ábendingar frá íbúum varðandi fjallahjóla­braut við Austurkór til athugunar og upplýsa um framgang málsins eins fljótt og auðið er. Eins og Kjarninn sagði frá í vikunni fékk bærinn fjölda athugasemda frá íbúum eftir að vakin var athygli á fjallahjóla­brautinni á Facebook-síðu bæjarins.

Það virtist samdóma mat flestra sem þar lögðu orð í belg að fjallahjóla­brautin væri ekki tilkomu­mikil og að í hana vantaði allar mishæðir og annað sem nota má til þess að láta reyna á hæfni í fjalla­hjólreiðum.

Grautfúlir krakkar

„Malar­stígur sem liggur í hring. Vei,“ skrifaði einn kaldhæðinn netverji við færslu bæjarins á Facebook. Þar hafa foreldrar einnig greint frá því að börn sín hafi verið afar svekkt með framkvæmdina, eftir að hafa beðið spennt eftir því að fá fjallahjóla­braut í nærumhverfið.

Bærinn brást við holskeflu athugasemda á svipuðum nótum í gær og sagðist sem áður segir ætla að taka málið til skoðunar.

Kjarninn sendi fyrir­spurn á Kópa­vogsbæ í vikunni og óskaði eftir öllum fyrir­liggjandi upplýsingum sem sveitar­félagið hefur um framkvæmdina, en engin svör hafa borist til þessa.

Fjallahjóla­brautin var á meðal þeirra verkefna sem íbúar völdu í verk­efninu Okkar Kópavogur í fyrra. Samkvæmt niður­stöðum íbúa­lýðræðis­verk­efnisins stóð til að verja 8 milljónum króna í verkefnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár