Furða sig á flatri fjallahjólabraut í Kópavogi

„Þetta er ekki fjalla­hjóla­braut, það er nokkuð ljóst,“ segir íbúi í Kópavogi um nýja fjalla­hjóla­braut við Aust­ur­kór, sem var valin af íbúum í kosn­ing­unni Okkar Kópa­vogur í fyrra. Íbúar gagn­rýna skort á mis­hæðum í braut­inni, sem átti að kosta 8 millj­ónir.

Fjallahjólabrautin við Austurkór var eitt verkefnanna sem valið var til framkvæmda af íbúum í íbúðalýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur í fyrra.
Fjalla­hjóla­brautin við Aust­ur­kór var eitt verk­efn­anna sem valið var til fram­kvæmda af íbúum í íbúða­lýð­ræð­is­verk­efn­inu Okkar Kópa­vogur í fyrra. Mynd: Kópavogur

Kópa­vogs­bær vakti í gær athygli á nýrri fjalla­hjóla­braut sem sett hefur verið upp við Aust­ur­kór í Kópavogi og hafa við­brögðin við braut­inni, sem var full­gerð á vor­dögum sam­kvæmt Facebook-færslu bæj­ar­ins, verið blendin. Helsta aðfinnslu­efnið er það að brautin sé mar­flöt og hafi lítið upp á að bjóða umfram aðra mal­ar­stíga í bænum.

Ráðist var í gerð þess­arar fjalla­hjóla­brautar eftir að hún var kosin af íbúum bæj­ar­ins í verk­efn­inu Okkar Kópa­vogur í fyrra. Samkvæmt nið­ur­stöðu kosn­inga í Okkar Kópavogi var áætlað að verja 8 millj­ónum króna til verks­ins.

Einn íbúi bæj­ar­ins skrifar, við nokkrar und­ir­tektir, að 8 millj­ónum króna virð­ist hafa verið varið í „flata mal­ar­stíga“ sem eng­inn hafi gaman af því að hjóla.

[adspot]

„Engar mis­hæðir eða bakkar til að láta reyna á hæfni. Þessi "fjalla­hjóla­braut" er í besta lagi sorg­legt grín og illa farið með fé íbúa bæj­ar­ins. Það væri fróð­legt að vita hvort að hönn­uður hafi nokkra reynslu af fjalla­hjóla­brautum. Er nokkuð viss um að þetta er ekki það sem fólk var að kjósa, amk er þetta langt frá vænt­ingum,“ skrifar þessi íbúi.

„Ég kaus þessa hug­mynd en þetta kaus ég sko ekki! Þetta er ekki fjalla­hjóla­braut, það er nokkuð ljóst,“ skrifar annar íbúi bæj­ar­ins og enn einn segir að bæj­ar­yf­ir­völd skuldi „börn­unum í hverf­inu lag­fær­ingu á þessu sem fyrst“.

Í Facebook-færsl­unni frá Kópa­vogsbæ, þar sem vakin var athygli á verk­inu, segir að ungir jafnt sem aldnir geti „hjólað og spólað“ eins og þá lystir í braut­inni. En þeir íbúar sem lagt hafa orð í belg virð­ast efins um að í þess­ari fjalla­hjóla­braut bæj­ar­ins verði mikið hjólað eða spólað.

All­nokkrar fjalla­hjóla­brautir hafa verið útbúnar hér á landi á und­an­förnum árum, sem æfinga- og leik­svæði fyrir börn og full­orðna í því vax­andi sporti sem fjalla­hjól­reiðar eru.

Til dæmis var í vor opnuð fjalla­hjóla­braut á Ásbrú í Reykja­nesbæ í vor og í Garðabæ var sett upp fjalla­hjóla­braut árið 2019, sem Lands­sam­band hjól­reiða­manna gerði góðan róm að á vef­síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár