Vilja 100 þúsund króna sektir fyrir að fleygja rusli

Ásmundur Frið­riks­son leggur fram frum­varp til breyt­inga á nátt­úru­vernd­ar­lögum. Frum­varpið hefur tví­vegis verið flutt áður en ekki náð fram að ganga.

Berst gegn sóðskap
Berst gegn sóð­skap Ásmundur vill að umhverf­is­sóðar verði sektaðir um að lág­marki 100 þús­und krónur. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Fimm þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins auk þing­manns Flokks fólks­ins hafa lagt fram frum­varp til breyt­inga á nátt­úru­vernd­ar­lögum þess efnis að fleygi fólk rusli á almanna­færi varði það sektum að lág­marki 100 þús­und krónum. Í grein­ar­gerð er bent á að erlendis sé víða þekkt að háar sektir liggi við slíku fram­ferði.

Umrætt frum­varp hefur í tvígang verið flutt áður en ekki náð fram að ganga, fyrst árið 2014 og síðan árið 2015. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varpið þá var Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Nú hefur Ásmundur Frið­riks­son, sam­flokks­maður Guðlaugs Þórs í Sjálf­stæð­is­flokknum, tekið málið upp á sína arma og flytur hann það í óbreyttri mynd ásamt með­flutn­ings­mönnum sínum.

Frum­varpið gerir ráð fyrir að við nátt­úru­vernda­lög bæt­ist máls­grein þar sem segir að öllum sem fari um hálendið eða þjóð­vegi lands­ins sé óheim­ilt að henda rusli á almanna­færi. Brot á því ákvæði varði sektum að lág­marki 100.000 krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár