Forseti Mexíkó hafnar því algjörlega að greiða fyrir Trump-múrinn

Forseti Mexíkó, Enrique Pena Nieto, hafn­aði því algjör­lega í gær að Mexíkó muni borga fyrir bygg­ingu múrs á landa­mærum Mexíkó og Banda­ríkj­anna.

Nieto lýsti þessu yfir á árlegum fundi sínum með sendi­herrum Mexíkós í for­seta­höll­inni, en í ræðu sinni brást hann meðal ann­ars við því sem Donald J. Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seti, sagði á blaða­manna­fundi sínum skömmu áður. Á meðal þess sem Trump sagði var að hann ætl­aði sér að skatt­legja fjár­magns­flutn­ing fyr­ir­tækja frá Mexíkó út úr Banda­ríkj­unum, og nota ávinn­ing­inn í að reisa múr á landa­mær­unum.

Nieto hafn­aði þessum hug­myndum og sagði þær algjör­lega á skjön við gild­andi frí­versl­un­ar­samn­inga. Hann sagð­ist enn fremur ætla að leita leiða til þess að eiga upp­byggi­leg sam­skipti við Trump og stjórn hans, og sagði full­viss um að þegar væri búið að skoða málin ofan í kjöl­inn þá væri það sam­eig­in­legur skiln­ingur stjórna í báðum löndum, að við­halda góðum sam­skiptum ríkj­anna.

Nieto var harð­orður þegar kom að hug­myndum að láta almenn­ing í Mexíkó greiða fyrir bygg­ingu múrs­ins. „Við munum aldrei sætta okkur við neitt sem vegur að virð­ingu okkar sem sjálf­stæðri þjóð í sjálf­stæðu ríki,“ sagði for­set­inn. „Það blasir við að okkur mun greina á við næstu rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna um ýmis­legt, til dæmis um múr­inn, sem Mexíkó mun að sjálf­sögðu ekki fjár­magna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár