Skráði ekkert um símtalið við Bjarna

„Símtöl dóms­mála­ráð­herra eru ekki skráð sér­stak­lega,“ segir dóms­mála­ráðu­neytið þrátt fyrir ákvæði laga um að skrá eigi öll form­leg sam­skipti milli ráðu­neyta Stjórn­ar­ráðs­ins og við aðila utan þess, en einnig „óform­leg sam­skipti ef þau telj­ast mik­il­væg“. Ítarleg reglu­gerð var sett um slíka skrán­ingu í fyrra.

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra skráði ekki sím­tal sitt við Bjarna Bene­dikts­son í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins þegar hún tjáði honum að Benedikt Sveins­son faðir hans væri einn af með­mæl­endum kyn­ferð­is­brota­manns­ins Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. „Símtöl dóms­mála­ráð­herra eru ekki skráð sér­stak­lega,“ segir í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við upp­lýs­inga­beiðni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um málið. 

Samkvæmt grein sem var bætt inn í lög um Stjórn­ar­ráð Íslands árið 2015 ber að skrá öll form­leg sam­skipti milli ráðu­neyta Stjórn­ar­ráðs­ins og við aðila utan þess, en einnig „óform­leg sam­skipti ef þau telj­ast mik­il­væg“. Þann 15. apríl í fyrra var svo sett ítar­leg reglu­gerð um skrán­ingu sam­skipta í Stjórn­ar­ráði Íslands þar sem til­greindar eru lág­marks­kröfur um skrán­ingu form­legra og óform­legra sam­skipta. Sú reglu­gerð leysti eldri reglugerð af hólmi þar sem einnig voru gerðar strangar kröfur um skrán­ingu, meðal ann­ars sím­tala. Þær reglur komu tals­vert við sögu þegar umboðs­maður Alþingis rann­sak­aði sam­skipti fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra við lög­reglu­stjóra vegna leka­máls­ins árið 2015.

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur gefið þær skýr­ingar á sím­tali sínu við Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra – sem er sagt hafa átt sér stað þann 21. júlí síð­ast­lið­inn – að hún hafi viljað vita hvort hann hefði átt aðkomu að ákvörðun um upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns og talið rétt að upp­lýsa hann um að faðir hans væri á meðal með­mæl­enda Hjalta. 

Fram kemur í nýlegri skýrslu stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis um upp­reist æru, reglur og fram­kvæmd að Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, hafi greint nefnd­inni frá því á fundi að hann teldi hafa verið mál­efna­lega ástæðu fyrir dóms­mála­ráð­herra að „upp­lýsa for­sæt­is­ráð­herra í trún­aði um trún­að­ar­gögn úr stjórn­sýslu­máli sem tengd­ust aðila honum nákomnum þar sem til­efnið hafi verið að þá hafi verið uppi vanga­veltur um að for­sæt­is­ráð­herra hefði komið að afgreiðslu þessa til­tekna máls“. Benti umboðs­maður jafn­framt á að slík sam­skipti gætu verið eðli­leg til að taka afstöðu til hæfis í við­kom­andi máli, þ.e. hvort sá sem tók ákvörðun hefði upp­fyllt hæf­is­skil­yrði. 

Nú liggur fyrir að engar upp­lýs­ingar voru skráðar um sam­skipti dóms­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra um með­mæli Bene­dikts Sveins­sonar og meinta aðkomu Bjarna Bene­dikts­sonar að ákvörð­unum er varða Hjalta Sigurjón Hauksson. 

Stundin sendi dóms­mála­ráðu­neyt­inu ítar­lega upp­lýs­inga­beiðni um með­ferð mál­anna í sept­em­ber en hefur engin svör fengið þrátt fyrir skýr ákvæði upp­lýs­inga­laga um að greina eigi fyr­ir­spyrj­anda um mót­töku upp­lýs­inga­beiðni þegar hún berst og að útskýra beri ástæður tafa ef svar hefur ekki borist innan sjö daga.  

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd sendi ráðu­neyt­inu einnig upp­lýs­inga­beiðni í sept­em­ber að frum­kvæði Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata, og fékk svar innan lög­bund­ins frests.

Þar kemur fram að sím­talið hafi ekki verið skráð. Þing­nefndin óskaði eftir dag­bók­ar­færslum eða sam­bæri­legum gögnum sem stað­festi sím­tal dóms­mála­ráð­herra við for­sæt­is­ráð­herra eða efni þess, en fær engin slík gögn.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur jafn­framt fram að sú ákvörðun ráð­herra að veita ekki fleiri ein­stak­lingum upp­reist æru og hefja end­ur­skoðun á laga­á­kvæðum hafi ein­ungis verið tekin munn­lega en ekki verið skráð eða skrif­lega rök­studd þegar hún var tekin. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár