Dómsmálaráðherra í þyrlu Landhelgisgæslunnar: „Skutluðu okkur í leiðinni“

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra stað­festir í samtali við Stundina að hann hafi notað tækifærið, tekið þátt í æfingu Landhelgis­gæslunnar í Breiða­firði og fengið í leiðinni far með þyrlu gæslunnar frá Bíldudal yfir á Stykkis­hólm. Ríkis­endurskoðun hefur gagnrýnt að ráðherrar nýti loftför í eigu eða leigu stofnana ríkissins.

Fékk far með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Fékk far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fékk far með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar frá Bíldudal til Stykk­is­hólms, og tók um leið þátt í æfingu með gæsl­unni. Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, var harð­lega gagn­rýnd fyrir að fá far með gæsl­unni á fund. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Já, ég notaði tækifærið og tók þátt í æfingu sem þeir voru að fara í og þeir skutluðu okkur í leiðinni hér yfir í Breiða­fjörð,“ segir Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra aðspurður að því hvort hann hafi þegið far með þyrlu Landhelgis­gæslunnar fyrr í dag. 

Jón segir að hann hafi verið að heimsækja embætti dómsmála­ráðuneytisins á Vestfjörðum og hafi ætlað að gera slíkt hið sama á Snæfellsnesi. „Þeir voru hérna á svæðinu og hentu okkur yfir í leiðinni,“ segir hann. Þá segist hann hafa tekið þátt í æfingu Landhelgis­gæslunnar áður en þyrlunni var á endanum lent í Stykkis­hólmi.

Í byrjun árs gagnrýndi Ríkis­endurskoðun að ráðherrar og aðrir ráðamenn hefðu flogið með loftförum Landhelgis­gæslunnar. Sérstaka gagnrýni fékk Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, þáverandi dómsmála­ráðherra, fyrir að hafa fengið far með gæslunni úr hestaferð með fjöl­skyldunni á fund í Reykjavík. „Tæki stofnunarinnar eru öryggis­búnaður sem keyptur er eða leigður sem tæki til löggæslu og björgunar­starfa til hagsbóta fyrir almenning en ekki til einka­erinda,“ segir í skýrslunni.

„Þeir skutl­uðu okkur í leið­inni hérna yfir í Breiða­fjörð“

Í svari dómsmála­ráðuneytisins við fyrir­spurn Ríkisendurskoðunnar í tengslum við úttektina segir að þar þyki „eðlilegt“ að nota loftför og skip stofnunarinnar við framkvæmd embættis­erinda dómsmála­ráðherra, sem er æðsti yfirmaður gæslunnar. Ríkis­endurskoðun var ósammála þeirri túlkun ráðuneytisins og sagði hana „umdeilanlega“ og að hún fengi tæpast staðist. „Ef þyrlur þurfa að bregðast við útköllum á meðan æfingum eða eftirlits­ferðum stendur og farþegi eða farþegar eru um borð er nauðsynlegt að lenda þyrlunni á hentugum stað til að hleypa þeim frá borði. Það hefur því óhjá­kvæmilega neikvæð áhrif á hversu fljót þyrlan er á vettvang,“ segir í skýrslunni.

Jón segir hins vegar að hann hafi farið eftir „þeim reglum sem Ríkis­endurskoðun setur um þessi mál.“ Ekkert óeðlilegt sé við að hann hafi þegið far með gæslunni: „Ég er bara hér í embættis­erindum og það vill svo til að þeir eru hér á svæðinu, meðal annars á æfingu. Ég er að kynna mér starfsemi þyrlu­sveitar gæslunnar og tek þátt í æfingu með þeim hér. Það er bara ekkert óeðlilegt við þetta.“

Við vinnslu úttektarinnar bað Ríkis­endurskoðun dómsmála­ráðuneytið að leggja drög að verk­reglum varðandi það far fyrir ráðherra. Reglur ráðuneytisins gera dómsmála­ráðherra kleift að fá far þegar hann er að sinna embættis­störfum í krafti stöðu sinnar sem æðsti yfirmaður Landhelgis­gæslunnar.

Ríkis­endurskoðun áréttaði að varhuga­vert væri að túlka ákvæði laga um ábyrgð og yfir­stjórn ráðherra yfir tilteknum stofnunum á þann veg að ráðherra hefði heimild til að „nýta eða ráðstafa mannauði, eignum og öðru lausafé stofnunarinnar í þágu embættisins síns frá degi til dags“. Ríkis­endurskoðun lagði til að settar yrðu viðmiðunar­reglur um afnot æðstu stjórnar ríkisins af loftförum í eigu eða leigu stofnana ríkisins og yrði afnot einkum látin taka til „flutninga vegna óvæntra atburða eða formlegra athafna á vegum æðstu stjórnar ríkisins en öll einkanot verði óheimil“.

Ásgeir Erlendsson, upplýsinga­fulltrúi Landhelgis­gæslunnar, segir að það sé ekkert nema eðlilegt að dómsmála­ráðherra kynni sér starfsemi stofnunarinnar og að fyrrnefnd gagnrýni Ríkis­endur­skoðunar eigi þar af leiðandi ekki við í þessu tilfelli. Ólíkt ráðherranum segir hann að eftirlits­ferðin og æfingin hafi hafist um leið og ráðherrann gekk um borð í þyrluna í Bíldudal og staðið þar til að henni var lent í Stykkis­hólmi. Ákveðið hefði verið í lok síðustu viku að ráðherrann myndi fylgjast með æfingu.

Ráðherran gaf ekki færi á því að svara því sjálfur hvenær hann ákvað að taka þátt í æfingu Landhelgis­gæslunnar og fá í leiðinni far með þyrlunni yfir í Breiða­fjörðinn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Bárður Jónsson skrifaði
    Þrefalt Djé.
    Dómgreindarleysi í Dómsmálaráðuneytinu og allt í boði X-D
    2
  • VÁ
    Vigfús Ásbjörnsson skrifaði
    Þetta er gert til að draga umræðuna frá Íslandbankaþjófnaðnum.
    1
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Glæsilegt......
    0
  • Einar Már Gunnarsson skrifaði
    Ráðherrarnir halda áfram að skíta uppá bak og reyna jaframt að skíta yfir Banka ruglið hjá BB.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár