Dæmdur fyrir hrottalega nauðgun gegn þroskahamlaðri konu – fékk uppreist æru í fyrra

Mynd­lista­maðurinn Tolli og Solla á Gló skrifuðu meðmæli fyrir mann sem dæmdur var fyrir kynferðis­brot árið 1998.

Maður sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga og misþyrma konu með þroska­hömlun árið 1998, fékk uppreist æru þann 8. ágúst í fyrra.

Meðmælendur mannsins voru mynd­lista­maðurinn Þorlákur Morthens, oft kallaður Tolli, og Sólveig Eiríks­dóttir, stofnandi veitinga­staðarins Gló.

Nafn mannsins er afmáð í gögnunum sem dómsmála­ráðuneytið afhenti Stundinni í gær. Að því er fram kemur í tölvu­pósti frá upplýsinga­fulltrúa ráðuneytisins er ástæðan sú að dómstólar ákváðu að þinghald í málinu væri lokað og að dómur yrði birtur án nafns. Hann var hins vegar nafn­greindur í fjöl­miðlum á sínum tíma. 

Fram kemur í dómi Héraðs­dóms Reykja­víkur, sem kveðinn var upp þann 26. mars árið 1998, að maðurinn hafi haldið konunni, sem er með þroska á við 6 ára barn, nauðugri á heimili sínu í tæplega sólar­hring og misþyrmt henni. Jafnframt fannst myndband með barna­klámi á heimili hans.

Sagði konuna hafa viljað það

Maðurinn hitti konuna í miðbæ Reykja­víkur aðfara­nótt 6. desember og fór hann með hana á heimili sitt þar sem hann nauðgaði henni og misþyrmdi. 

Eftir að hann sofnaði áfengis­dauða tókst konunni að hringja í foreldra sína sem leituðu aðstoðar lögreglu. Þegar lögreglan kom á heimili mannsins var hún í hand­járnum og með mikla áverka.

Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi viðurkennt að hafa hand­járnað konuna, bundið og lamið með hundaól. Viðurkenndi hann að sumir áverkarnir á henni væru af sínum völdum en sagði að það sem fram fór hefði verið með vilja hennar.

Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að brotin beindust að kynfrelsi konunnar sem er þroska­heft. Hann hefði svipt hana frelsi í marga klukku­tíma og valdið henni miklum áverkum. Þótti tveggja ára fangelsis­refsing hæfileg og 109 daga gæslu­varðhalds­vist kom refsingunni til frádráttar. 

Orðinn „fallegri og stærri einstaklingur“

Maðurinn sótti um uppreist æru þann 28. febrúar 2016. Fram kemur í meðmæla­bréfi Þorláks Morthens að hann hafi verið samferða honum undan­farin ár og kynnst þar „ábyrgum og traustum manni sem hefur lagt á sig mikla og heiðar­lega vinnu í sjálfan sig og er í dag það sem við köllum traustur samborgari“. 

Í bréfi sínu segist Sólveig Eiríks­dóttir hafa þekkt manninn í hartnær 30 ár. „Einstak­lega opinn og hjarta­hlýr maður og er góður faðir og afi að ég veit,“ skrifar hún og bætir því við að hann hafi vaxið og dafnað, orðið að „fallegri og stærri einstaklingi á öllum sviðum“. Hann sé „traustur, heiðar­legur og góður vinur með einstak­lega sterka réttlætis­kennd“. 

Ólöf Nordal, þáverandi innan­ríkis­ráðherra, lagði til þann 19. júlí 2016, í samræmi við stjórnsýslu­hefðir og lög, að maðurinn fengi uppreist æru og staðfesti Guðni Th. Jóhannesson forseti tillöguna þann 8. ágúst sama ár.

Uppfært kl. 18:39:

Haft var eftir Sólveigu Eiríks­dóttur í fréttum Stöðvar 2 að með meðmælunum hefði hún ekki viljað samþykkja eða réttlæta á nokkurn hátt þann glæp sem maðurinn framdi. Hún hafi eingöngu verið að votta um góða hegðun hans á tilteknu tímabili, að hann sé orðin breytt og betri manneskja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár