Borgarstjórastóllinn ekki markmið í sjálfu sér

Oddvitar stærstu flokkanna í Reykjavík eru varkárir í yfir­lýsingum um nýtt meirihluta­samstarf en telja rétt að fráfar­andi meirihluta­flokkar stilli saman strengi. Oddviti Framsóknar­flokksins segir borgar­stjóra­stólinn ekki vera markmið í sjálfu sér.

Einar Þorsteinsson, ddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, sem vann stóran sigur, segir borgarstjórastólinn ekki vera markmið í sjálfu sér.
Einar Þor­steins­son, ddviti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sem vann stóran sigur, segir borg­ar­stjóra­stól­inn ekki vera mark­mið í sjálfu sér. Mynd: Bára Huld Beck

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins í Reykjavík, átti ekki von á jafn góðu gengi og niður­stöður borgar­stjórnar­kosninga sýna. Framsóknar­flokkurinn vann sinn stærsta sigur í borginni og fær fjóra borgar­fulltrúa en flokkurinn var ekki með fulltrúa í borgar­stjórn á síðasta kjör­tímabili . Meirihlutinn er fallinn en fær tíu borgar­fulltrúa. Tólf þarf til að mynda meirihluta.

Einar sagði á Sprengis­andi á Bylgjunni í morgun að hann ætli að taka því alvarlega að láta málefnin ráða för við myndun meirihluta, verði flokkurinn í þeirri aðstöðu, sem verður að teljast líklegt.

Einar segir niður­stöðuna merki um að fólk vilji breytingar á pólitískri forystu í borginni og segir hann flokkinn tilbúinn að fara inn í meirihluta­viðræður með opnum huga. „Við erum tilbúin að láta gott af okkur leiða og axla pólitíska ábyrgð og veita forystu fyrir þessum breytingum,“ segir Einar. Framsókn ætli að taka daginn til að melta niður­stöðurnar og kosninga­sigurinn.

Niðurstöðurnar sýni stuðning við borgarlínu og samgöngusáttmála

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir niður­stöðurnar sýna stuðning við borgar­línu og samgöngu­sáttmála þar sem flokkar sem eru fylgjandi þeim málefnum ná um 60 prósent fylgi. Samfylkingin tapaði tveimur borgar­fulltrúum í kosningunum í gær.

„Þetta er kannski svona stóra myndin. Þetta eru margir flokkar og fylgið dreifist. Það þarf að ræða málin og finna út hvernig er hægt að ná meirihluta í kringum áherslur,“ sagði Dagur á Sprengis­andi.

Dagur segir að ef meirihlutinn hefði haldið hefði það verið fyrsti kostur að halda samstarfinu áfram. Það sé hins vegar ekki raunin en flokkarnir sem mynduðu meirihluta eftir síðustu kosningar trúi á sömu fram­tíðarsýn í stórum atriðum. „En þeirri fram­tíðarsýn deila auðvitað miklu fleiri.“

„Við erum stærst“

Hildur Björns­dóttir, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í borginni, fagnar því að Sjálfstæðis­flokkurinn sé áfram stærsti flokkurinn í borginni þó hann hafi tapað tveimur borgar­fulltrúum. „Við erum stærst, við vissum það í nokkrar vikur að við myndum ekki ná sama árangri og fyrir fjórum árum, okkur mætti svona mikill vindur í fangið á síðustu vikum og slæmar kannanir. Og við erum svolítið þannig gerð að þegar við fáum vindinn í fangið þá þéttum við raðirnar og gefum enn frekar í,“ sagði Hildur á Sprengis­andi. Hún segist þó ekki geta tekið undir greiningu Dags þar sem Sjálfstæðis­flokkurinn hafi alltaf stutt samgöngu­sáttmála.

Hildur segir að niður­staða kosninganna sýni að fólk vilji breytingar, nýja forystu. Hún segir í raun ekki skipta máli hver verði borgar­stjóri heldur verði málefnin að ráða för. Borgar­stjórinn sé sannarlega áhrifa­mikill en það sé hluti af þeim samninga­viðræðum sem eru fram undan að ákveða hver verði borgar­stjóri.

Óljós svör um framtíð Dags sem borgarstjóra

Aðspurður hvort hann sé tilbúinn að snúa sér að öðrum störfum í meirihluta en embætti borgar­stjóra, líkt og þegar Jón Gnarr varð borgar­stjóri þegar hann leiddi Besta flokkinn, segist Dagur ætla að setjast niður með sínu fólki og samstarfs­fólki í borgar­stjórn og ræða stöðuna. „Það eru ekki til neinar leik­reglur um hvernig meirihluta­viðræður eiga sér stað. Við þurfum að nýta tímann vel næstu daga til að mynda meirihluta,“ sagði Dagur á Sprengis­andi.

Borgar­stjóra­stóllinn, auk niður­stöður sveitar­stjórna­kosninganna í heild sinni, var einnig til umræðu í Silfrinu á RÚV. Þar sagði Einar borgar­stjóra­stólinn ekki vera sérstakt markmið í sjálfu sér. „Við þurfum að sjá hvert þessi umræða um málefni leiðir okkur og meta svo stöðuna,“ sagði Einar í Silfrinu. „Það er sveifla með þessari hugmynda­fræði að vera lausna­miðuð og sanngjörn í garð annarra.“

Samfylking, Píratar og Sósíalistaflokkur útiloka samstarf með Sjálfstæðisflokknum

Dagur segir að það verði bara að koma í ljós hvort „löngum og ströngum“ borgar­stjórnar­ferli hans sé lokið. „Núna er það í okkar höndum að ná saman um lykil­málin til að mynda starf­hæfan og góðan meirihluta og síðan skipta verkum, þar á meðal því hver verður borgar­stjóri.“ Dagur segir það mjög langsótt að Samfylking geti starfað með Sjálfstæðis­flokki í borgar­stjórn þar sem fram­tíðarsýn flokkanna sé mjög ólík.

Píratar útiloka sömuleiðis samstarf við Sjálfstæðis­flokk. „Einfald­lega vegna þess að okkar helsta baráttumál er baráttan gegn spillingu og við teljum Sjálfstæðis­flokkinn ekki vera trúverðugan í því samhengi,“ sagði Dóra Björt Guðjóns­dóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, í Silfrinu.

Píratar eru eini flokkurinn í núverandi meirihluta sem bætir við sig fylgi. „Það er yndislegt,“ segir Dóra Björt, sem vonar að kjósendur séu að átta sig á að Píratar séu traustsins verðir þar sem flokkurinn hefur bætt við sig borgar­fulltrúa í síðustu tvennum kosningum.

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, oddviti Sósíal­ista, segir ákall um kjör hinna verst settu hafa skilað flokknum þessu góða gengi en flokkurinn bætir við sig einum borgar­fulltrúa. Sanna sér fyrir sér Samfylkingu, Sósíal­ista, Pírata og Flokk fólksins í borgar­stjórn, flokka sem mynda félags­hyggju­stjórn. „Mér finnst þurfa að vera mjög skýrt í hvaða átt Framsókn stefnir,“ sagði Sanna í Silfrinu.

Sjálfstæðisflokkurinn úthúði ekki öðrum framboðum

Hildur segir ýmsa möguleika í stöðunni sem verði að skoða og hlakkar hún til að setjast að samninga­borðinu með öðrum oddvitum. Sjálfstæðis­flokkurinn útilokar ekki samstarf við neinn flokk. „Við höfum ekki haft þann sið á að úthúða öðrum framboðum hvað það varðar að geta ekki sest niður við borðið með þeim og unnið með þeim og starfað með þeim þó að hér geri það aðrir í okkar garð auðvitað. En við erum breiðu flokkur og samansatöndum af mjög fjöl­breyttu fólki og kunnum að vinna með öðru fólki sem er ekki eins og við, alltaf,“ segir Hildur sem er spennt fyrir komandi samtölum næstu daga.

Oddvitarnir voru að öðru leyti varkárir í umræðum um myndun meirihluta en Dagur og Dóra Björt segja það réttast að fráfar­andi meirihluti ræði fyrst saman um næstu skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár