Forstjóri Nissan fundaði með Theresu May vegna Brexit

For­stjóri Nissan, Carlos Ghosn, fund­aði með for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Theresu May, um efn­hags­leg áhrif þess að Bretland sé á leið úr Evr­ópu­sam­band­inu, eftir að almenn­ingur kaus með því í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í júní, og er nið­ur­staðn oft­ast kennd við Brexit.

Ghosn mætti til fund­ar­ins á svörtum Qashqai jeppa, en hann er fram­leiddur í risa­vöxnum verk­smiðjum Nissan í Sund­er­land.

Ghosn hefur gefið það í skyn að eftir Brexit, þá geti efna­hags­legar aðstæður í Bret­landi versnað og leitt til erf­ið­leika til fram­tíðar litið. Nissan muni draga úr fjár­fest­ingum og fækka starfs­mönnum, ef þess verður talin þörf.

Samtals vinna sjö þús­und manns í verk­smiðj­unum í Sund­er­land. Ghosn sagði í við­tali við breska rík­is­út­varpið BBC, eftir fund sinn með May, að hann væri viss um að bresk stjórn­völd myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja sam­keppn­is­hæfni bíla­iðn­að­ar­ins í Bret­landi.

May sjálf sagði ánægð með fund­inn, og ítrek­aði jafn­framt að það væri eitt af áherslum málum rík­is­stjórnar hennar, að vinna með iðn­aði í land­inu þannig að öfl­ugt atvinnu­líf gæti þrif­ist í Bret­landi eftir Brexit.

Fram­leiðslu­deild Nissan fyrir Evr­ópu­markað er að stóru leyti í Sund­er­land, en þar eru fram­leiddir um 500 þús­und bílar á ári.

Frá því í júní þá hefur pundið fallið um meira en tutt­ugu pró­sent gagn­vart helstu við­skipta­myntum, eins og evru og Banda­ríkja­dal. Það sama gildir um krón­una.

Pundið kostar nú 140 krónur en kost­aði fyrir ári síðan 206 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár