Stórsigur Vina Kópavogs í takti við könnun sem framboðið lét framkvæma

Þegar félagið Vinir Kópavogs var að ákveða hvort það ætti að bjóða fram í bæjar­stjórnar­kosningum eða ekki lét það gera könnun, sem sýndi að rúm 17 prósent bæjarbúa gætu hugsað sér að kjósa sérframboð félagsins – sama fylgi og sést í fyrstu tölum.

Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipulagsmál í Kópavogi og eru með 17,2 prósent eftir fyrstu tölur úr bænum.
Vinir Kópavogs spruttu upp úr óánægju með skipu­lags­mál í Kópavogi og eru með 17,2 pró­sent eftir fyrstu tölur úr bænum. Mynd: Kópavogur

Íbúa­hópurinn Vinir Kópavogs virðast ætla að vinna mikinn sigur í kosningum til bæjar­stjórnar í Kópavogi, en samkvæmt fyrstu tölum úr bænum er framboðið með 17,2 prósent fylgi og einungis Sjálfstæðis­flokkurinn stærri.

Þetta eru miklar vendingar en ef til vill var þetta niður­staðan sem búast mátti við, miðað við skoðana­könnun sem félagið lét gera fyrir sig á meðal bæjarbúa í aðdrag­anda þess að það ákvað að taka þátt í sveitar­stjórnar­kosningunum.

Niður­stöður hennar voru þær að rúm 17 prósent Kópa­vogsbúa teldu líklegt að þeir myndu íhuga að kjósa sérframboð undir nafni Vina Kópavogs í bæjar­stjórnar­kosningunum.

Kjarninn sagði frá þeirri könnun í febrúar­mánuði, en þá var íbúa­hópurinn ekki búinn að taka ákvörðun um að bjóða fram. Útkoman í Kópavogi samkvæmt fyrstu tölum er þannig í samræmi við bestu mögulegu niður­stöðuna sem hægt hefði verið að lesa út úr könnun fram­boðsins.

Á fundi sem félagið hélt í Smáranum um miðjan febrúar kom fram tillaga um að bjóða fram undir hatti Miðflokksins, en hún var felld einum rómi og var það afstaða fundar­manna að ef félagið færi fram yrði það óháð flokks­pólitískum línum.

Hópur íbúa sem eru óánægðir með skipulagsmál

Félagið Vinir Kópavogs er sprottið upp úr óánægju hóps bæjarbúa með skipulagsmál í bænum, ekki síst uppbyggingu þéttrar íbúa­byggðar við Hamraborg og á Kársnesi.

Í könnuninni frá því í febrúar, sem félagið lét Gallup framkvæma, var einnig spurt um hvernig bæjarbúum litist á nýtt miðbæjar­skipulag Kópa­vogsbæjar.

Var nið­ur­staðan á þá leið að tæp 38 pró­sent sögðu að þeim lit­ist illa á áform­in, en rúmum 34 pró­sentum vel. 28 prósent sögðust hlutlaus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár