„Það á að slátra manni fyrir að upplýsa um grimmdarverk og glæpi“

Ritstjóri Wikileaks segist hafa orðið vitni að skefja­lausri grimmd við réttarhöld yfir Julian Assange.

Mótmælendur hengdu upp plaköt til stuðnings Assange.
Mót­mæl­endur hengdu upp plaköt til stuðn­ings Assange. Mynd: EPA

„Það á að slátra manni fyrir að upplýsa um grimmdar­verk og glæpi. Fyrir að opinbera sann­leikann.“ Þetta sagði ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson, á Facebook í gær en tilefnið eru réttahöld yfir Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

Í réttar­höldunum verður úr­sk­urðað um hvort Assange verði fram­seld­ur til Banda­ríkj­anna, þar sem hann á yfir höfði sér allt að 175 ára langa fang­elsis­vist fyr­ir njósn­ir. Úrskurðar er að vænta þann 4. janúar næst­komandi.

Kristinn kom hingað til lands fyrir nokkrum dögum eftir að hafa varið heilum mánuði í réttarsal í London. Hann segist hafa átt í mesta basli með ná utan um þá „skefja­lausu grimmd“ sem hann hafi orðið vitni að. Enn hafi hann ekki náð að komast að kjarna „þess viðbjóðs sem er í gangi undir holu og ógeð­felldu yfirskyni sýndar­mennsku rétt­látrar máls­meðferðar í svokölluðu réttarrríki“.

Árið 2010 birti Wikileaks 470.000 trúnaðar­skjöl frá bandaríska hernum um utan­ríkis­þjónustu og stríðin í Afganistan og Írak. Síðar birti Wikileaks 250.000 önnur skjöl. Bandarísk stjórn­völd telja að um alvarlegt lögbrot og njósnir sé að ræða en Wikileaks segir upplýsingarnar eiga erindi við almenning.

Kristinn hafa tekið þátt í þessum verkum sem Assange er ákærður fyrir og leit hann á það sem blaða­mennsku til að þjóna þeim æðstu gildum sem felast í því sem hann gerði að lífs­starfi.

„Ég gefst ekki upp því of mikið er í húfi en ég hef verið vanmáttugur og orðlaus,“ skrifar hann.

Örfáir komust að í réttarsalnum

Fáir komust að í almanna­rýminu í réttar­salnum, að sögn Kristins. „Þangað fengu bara fimm að komast á hverjum degi, pabbi Julians, bróðir hans, frændi og frænka og einstaka stuðnings­maður. Líklegast þykir mikil gæska í því fólgin að hleypa ættingjum að aftöku­staðnum þar sem lífið er tekið af fólki undir formfestu og réttlæti hinnar snyrti­legu og hvassbrýndu fallaxar.“

Hann segir að vonandi komi hann þessu almennilega í orð síðar. Þegar svellandi reiðin dvíni eilítið.

Kristinn endar færsluna á að segja að það hafi verið lítið sem ekkert sem þeir Assange gátu rætt þennan mánuð í réttar­salnum. „Á loka­stundu kvaddi ég hann með því að leggja krepptan hnefann utan á skothelda glerið sem aðskildi mig og hann, fangann í búrinu, fyrir að upplýsa um stríðs­glæpi, pyntingar og ógeð. Hann lagði hnefann á móti mínum fyrir innan þykkt glerið. Orðlaus tenging,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár