Mynd: EPA

Wikileaks: Blaðamennska í almannaþágu eða glæpur?

Julian Assange, stofn­andi Wikileaks, á í hættu á að vera fram­seldur til Banda­ríkj­anna þar sem hann gæti átt yfir höfði sér 175 ár í fang­elsi verði hann fund­inn sekur.

Banda­ríkin, Bretland, Svíþjóð, Ekvador og Ísland. Leki, frétta­flutn­ingur og blaða­menn. Fjöl­miðla­frelsi og ásak­anir um njósnir og kyn­ferð­is­of­beldi. Mál Julian Assange, stofn­anda Wikileaks, sem nú gæti verið fram­seldur til Banda­ríkj­anna er ekki ein­falt. Kjarninn rýnir í málið.

Julian Assange, stofn­andi Wikileaks, fór í gær fyrir dóm­stóla í Bret­landi þar sem fram­sals­beiðni banda­rískra yfir­valda var tekin fyrir. Banda­rísk yfir­völd stefndu Assange í 18 liðum, þar á meðal fyrir njósnir. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að hakka sig í tölvu í rík­is­eign ásamt Chelsea Manning.

Loka­nið­ur­staða um fram­sals­beiðn­ina verður tekin í febr­úar á næsta ári, greinir AFP frétta­stofan frá.

Árið 2010 birti Wikileaks 470.000 trún­að­ar­skjöl frá banda­ríska hernum um utan­rík­is­þjón­ustu og stríðin í Afganistan og Írak. Síðar birti Wikileaks 250.000 önnur skjöl. Banda­rísk stjórn­völd telja að um alvar­legt lög­brot og að um njósnir sé að ræða en Wikileaks segir upp­lýs­ing­arnar eiga erindi við almenn­ing.

Ráðherra undirritaði framsalsbeiðnina

Sajid Javid, inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, und­ir­rit­aði fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna um Julian Assange í gær. Í við­tali sagði Javid að það væri rétt­látt að Assange væri á bak við lás og slá. Bresk stjórn­völd hafa haldið því fram að Assange yrði ekki fram­seldur ef hann gæti verið dæmdur til dauða.

Verði Assange fram­seldur til Banda­ríkj­anna gæti hann fengið allt að 175 ára dóm, verði fund­inn sekur í öllum ákær­liðum.

Þyrnir í augum stjórnvalda

Wikileaks hefur lengi verið þyrnir í augum banda­rískra stjórn­valda. Til að mynda birti Wikileaks mynd­bönd árið 2010 sem sýna fram­göngu banda­rískra her­valda í Írak sem vakti hörð við­brögð almenn­ings á þeim tíma.

Þar á meðal var mynd­band af þyrlu­árás banda­ríska hers­ins sem Kristinn Hrafns­son, núver­andi rit­stjóri Wikileaks, hlaut blaða­manna­verð­laun Íslands fyrir árið 2010 . Verð­launin hlaut hann fyrir vinnslu mynd­bands­ins ásamt Inga R. Ingasyni. Verð­launin voru veitt fyrir fram­úr­skar­andi úrvinnslu á mynd­bandi um þyrlu­árás í Bagdad auk þess sem verð­launin voru fyrir störf Kristins sem full­trúi WikiLeaks.

Í til­kynn­ingu Blaða­manna­fé­lags Íslands sagði að mynd­bandið hafi vakið heims­at­hygli og sýndi „hið firrta eðli nútíma hern­aðar og færði reynslu og örlög fórn­ar­lamba heim í íslenskar stofur.“

Svíar vilja yfirheyra Assange

Önnur fram­sals­beiðni en sú banda­ríska lá um tíma fyrir breskum yfir­völdum gagn­vart Assange, það er til Sví­þjóðar. Málið varðar ákæru á hendur Assange frá árinu 2010 þar sem tvær sænskar konur sök­uðu hann um kyn­ferð­is­of­beldi.

Assange var sak­aður um að hafa nauðgað einni sænskri konu og hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn annarri árið 2010 er hann var í vinnu­ferð Stokk­hólmi. Assange hefur ávallt haldið því fram að hann hafi átt í sam­ræði við báðar kon­urnar með þeirra vilja.

Árið 2011 dæmdi breskur dóm­ari að Assange skyldi fram­seldur til Sví­þjóðar. Árið 2012 flúði hann svo til sendi­ráðs Ekvador í London þar sem hann hlaut póli­tískt hæli. Assange dvaldi þar í sjö ár en stjórn­völd Ekvador aft­ur­köll­uðu hið póli­tíska hæli hans skyndi­lega í apríl.

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­af­brotum Assange var hætt árið 2017 vegna þess að Assange var enn í sendi­ráði Ekvador í London. Hann var fjar­lægður úr sendi­ráð­inu í apríl síð­ast­liðnum og hand­tek­inn í kjöl­farið.

Sænskir sak­sókn­arar ákváðu í kjöl­farið að opna aftur á rann­sókn er varðar ásak­anir á hendur Assange. Töldu sak­sókn­ar­arnir að þörf væri á að spyrja hann út í ásak­an­irnar á ný. Í byrjun júní komst dóm­stóll í Uppsala hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að þótt Assange væri enn grun­aður um afbrot þá væri óþarfi að gefa út hand­töku­skipun eða leggja fram fram­sals­beiðni, enda væri hann nú þegar í haldi í Bret­landi.

Njósnari í sendiráðinu?

Lenín Moreno, for­seti Ekvador, sagði að Assange hefði notað sendi­ráðið til njósna og þar af leiðir hefði póli­tíska hæli hans verið aft­ur­kallað.

Kristinn Hrafns­son telur að ásak­anir Moreno á hendur Assange séu súr­r­eal­ískar og fárán­legar.

Leynd hefur ríkt yfir ákærunni gegn Assange en upp komst um leynd­ina fyrir til­viljun þegar nafn hans birt­ist í ótengdum dóms­skjölum í nóv­em­ber 2018. Í þeim skjölum kom fram að þau þyrftu að vera inn­sigluð þar til Assange yrði hand­tek­inn.

Óvíst er hvort hægt sé að sýna fram á laga­legan mun á því sem Wikileaks gerði og það sem aðrir fjöl­miðlar gerðu með því að fjalla um upp­lýs­ing­arnar sem komu fram á Wiki­leaks-­síð­unni

Samkvæmt breskum lögum getur inn­an­rík­is­ráð­herra frestað einni fram­sals­beiðni þangað til hinni er lokið. Breskir þing­menn hafa sent inn­an­rík­is­ráð­herra bréf þess efnis að senda Assange frekar til Sví­þjóðar heldur en Banda­ríkj­anna, að því er kemur fram í frétt The Guardian.

Chelsea Manning neitar að bera vitni

Chelsea Manning, sem hafði verið dæmd í 35 ára fang­elsi fyrir að leka upp­lýs­ingum til Wikileaks en var síðar veitt lausn af Obama, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna, neitar nú að bera vitni fyrir kvið­dómi og var fyrir vikið dæmd í fang­elsi. Talið er að vitn­is­burður hennar gæti verið tengdur ásök­unum á hendur Assange.

Manning gæti þurft að greiða 500 doll­ara sekt á dag sem gæti hækkað upp í 1000 doll­ara á dag, beri hún ekki vitni.

Ísland komið í flækjuna

Samkvæmt Kristni Hrafns­syni kom lög­reglu­maður frá Alrík­is­lög­reglu Banda­ríkj­anna til Íslands vegna rann­sóknar á hendur Assange og Wikileaks í maí síð­ast­liðnum. Auk lög­reglu­manns­ins var sak­sókn­ari frá banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu með í för.

Samkvæmt Kristni höfðu menn­irnir uppi á Sigurði Inga Þórð­ar­syni, sem er betur þekktur sem Siggi Hakkari, með hjálp íslensku lög­regl­unnar.

Kristinn Hrafns­son sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra, auk rík­is­sak­sókn­ara og rík­is­lög­reglu­stjóra en hefur enn ekki borist svar við fyr­ir­spurn sinni.

Kristinn óskaði svara fyrir dag­inn í gær, þann 14. júní, þar sem fresti lýkur fyrir banda­rísk stjórn­völd að skila inn skjölum og bæta inn ákærum gegn Assange.

Í skrifum sínum á Facebook síðu sinni sagði Kristinn „Ég vænti þess að fleirum en mér þyki for­vitni­legt að vita hvernig vera megi að íslensk yfir­völd veiti lið­sinni sitt í póli­tískum ofsóknum og ofstæki sem lýst hefur verið sem skelfi­leg­ustu aðför að frelsi fjöl­miðla á Vest­ur­löndum og blaða­mennsku í heim­inum á síð­ari tímum. Þær ofsóknir bein­ast m.a. að íslenskum rík­is­borg­urum.”

Sigurður, eða Siggi Hakkari, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2015 fyrir kyn­ferð­is­brot gegn níu drengjum.

Sigurður hefur áður verið fund­inn sekur um þjófnað frá Wikileaks. Sigurður var sak­aður um að hafa þóst vera Julian Assange og fengið for­stjóra vef­versl­unar til að milli­færa stórar fjár­hæðir á eigin banka­reikn­inga, að því er kemur fram í frétt RÚV.

Mun ríkisstjórnin beita sér í málinu?

Í sam­tali við frétta­mann Vísis í fyrra­dag sagði Kristinn Hrafns­son að í gangi væri ekk­ert annað en yfir­grips­mikil og alvar­leg þöggun. Hann trúi að eftir að nið­ur­staða fáist í fram­sals­beiðn­ina muni sjást betur á spilin hvað varði fram­haldið. Hins vegar gæti verið langt í að end­an­legri ákvörðun líti dags­ins ljós varð­andi fram­sal á Assange, að því er kemur fram í við­tal­inu.

Kristinn sagði blaða­manni Vísis að fram­ganga Banda­ríkj­anna væri árás á grunn­gildi blaða­mennsk­unnar.

Í byrjun júní sögð­ust bæði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, ekki hafa vit­neskju um milli­göngu um aðstoð við banda­rísku alrík­is­lög­regl­una. Katrín sagði enn fremur að eng­inn í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hafi verið upp­lýstur um málið en að hún muni kanna málið betur.

Í fyrra­dag for­dæmdu bæði Félag frétta­manna RÚV og for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands ákvörðun ráð­herra Bret­lands um að und­ir­rita fram­sals­beiðni Assange til Banda­ríkj­anna. Félag frétta­manna skor­aði enn fremur á íslensk stjórn­völd að beita sér gegn fram­sal­inu.

Þing­flokkur Pírata for­dæmir fram­sals­kröf­una einnig harð­lega. Segir í frétta­til­kynn­ingu frá þing­flokknum að hafa verði í huga að „fyrir til­stuðlan Julian Assange var almenn­ingur upp­lýstur um stríðs­glæpi Banda­ríkja­manna og banda­manna þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið undanfarið ár